„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Norræna gulldepla, nýr nytjafiskur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:
'''Norræna gulldepla, nýr nytjafiskur'''

'''Norræna gulldepla, nýr nytjafiskur'''

Haustið 2008 fór Huginn VE 55 til kolmunna- leitar. Veiðum á Íslandssíldinni var lokiö og var verið að leita að verkefnum fyrir skipið fram að loðnu. Þrátt fyrir mikla leit á stóru svæði fannst ekki kolmunni í veiðanlegu magni. Þeir rákust samt sem áður á miklar lóðningar suður af Eyjum og köstuðu trollinu í von um að þar leyndist kolmunninn. En eftir að þeir voru búnir að draga í talsveröa stund í gegnum lóðið án þess fá blikk á aflanema var híft. Pokinn reyndist tómur cn neðst í honum voru nokkur örsmá kvikindi. Það reyndist vera hin smáa norræna gulldcpla eftir nánari rannsókn en ekki var mikið af þeim í þetta skiptið enda voru þeir með kolmunnapokann undir og smaug allur fískur út um hann.
Haustið 2008 fór Huginn VE 55 til kolmunnaleitar. Veiðum á Íslandssíldinni var lokið og var verið að leita að verkefnum fyrir skipið fram að loðnu. Þrátt fyrir mikla leit á stóru svæði fannst ekki kolmunni í veiðanlegu magni. Þeir rákust samt sem áður á miklar lóðningar suður af Eyjum og köstuðu trollinu í von um að þar leyndist kolmunninn. En eftir að þeir voru búnir að draga í talsverða stund í gegnum lóðið án þess fá blikk á aflanema var híft. Pokinn reyndist tómur en neðst í honum voru nokkur örsmá kvikindi. Það reyndist vera hin smáa norræna gulldepla eftir nánari rannsókn en ekki var mikið af þeim í þetta skiptið enda voru þeir með kolmunnapokann undir og smaug allur fiskur út um hann.

Það var því í kjölfarið ákveðið að láta rannsaka fiskinn með það í huga hvort hægt væri að nýta hann í bræðslu. Auk þess þurfti að breyta veiðarfærum til þess að geta veitt þennan smáa fisk.
Það var því í kjölfarið ákveðið að láta rannsaka fiskinn með það í huga hvort hægt væri að nýta hann í bræðslu. Auk þess þurfti að breyta veiðarfærum til þess að geta veitt þennan smáa fisk.

Þaö var svo í desember sem Huginn VE hélt í sína fyrstu gulldepluveiðiferö. Ekki varð mikill árangur af veiðiferðinni sem slíkri en þrátt fyrir ekki hafi mikið fiskast þá öfluðu menn sér mikillar reynslu. Þeir slógu undir loðnupokanum í þetta skiptið en möskvarnir í honum reyndust vera of stórir fyrir þennan smáa fisk sem gulldeplan er. Það var því eytt tíma í að þróa veiðarfærin betur og eftir jól og áramót var farið af stað á ný. Nú fór að fiskast betur enda menn komnir með sérútbúna poka fyrir veið- arnar.
Það var svo í desember sem Huginn VE hélt í sína fyrstu gulldepluveiðiferð. Ekki varð mikill árangur af veiðiferðinni sem slíkri en þrátt fyrir ekki hafi mikið fiskast þá öfluðu menn sér mikillar reynslu. Þeir slógu undir loðnupokanum í þetta skiptið en möskvarnir í honum reyndust vera of stórir fyrir þennan smáa fisk sem gulldeplan er. Það var því eytt tíma í að þróa veiðarfærin betur og eftir jól og áramót var farið af stað á ný. Nú fór að fiskast betur enda menn komnir með sérútbúna poka fyrir veiðarnar.

I stuttu máli sagt þá fór alltaf að ganga betur og beturað veiöa gulldepluna og tóku aðrar útgerðir renna hýru auga til veiðanna enda engar loðnuveið- ar hafnar og ekki gott útlitið í þeim efnum. Þegar mest var þá stunduðu þessar veiðar flest íslensk uppsjávarveiðiskip en fljótlega um mánaðamótin janúar-febrúar fór að draga úr veiðunum. Megninu afaflanum var landað hér í Eyjum og stoppaöi það vissulega í það gat sem loönuleysið hafði myndað. Heildarafli gulldeplu var tæp 39.000 tonn og var Huginn VE aflahæstur yfir íandið með um 6.400 tonn. Alls var landað tæpum 19.000 tonnum afgull- deplu hér í Eyjum.
Í stuttu máli sagt þá fór alltaf að ganga betur og betur að veiða gulldepluna og tóku aðrar útgerðir renna hýru auga til veiðanna enda engar loðnuveiðar hafnar og ekki gott útlitið í þeim efnum. Þegar mest var þá stunduðu þessar veiðar flest íslensk uppsjávarveiðiskip en fljótlega um mánaðamótin janúar-febrúar fór að draga úr veiðunum. Megninu af aflanum var landað hér í Eyjum og stoppaði það vissulega í það gat sem loönuleysið hafði myndað. Heildarafli gulldeplu var tæp 39.000 tonn og var Huginn VE aflahæstur yfir landið með um 6.400 tonn. Alls var landað tæpum 19.000 tonnum af gulldeplu hér í Eyjum.

Alls fiskuðu skip frá Vestmannaeyjum 13.480 tonn og skiptist það á þessa leið:
Alls fiskuðu skip frá Vestmannaeyjum 13.480 tonn og skiptist það á þessa leið:

Huginn VE 55 6380 tonn.
Huginn VE 55 6380 tonn.

ÁlseyVE2 1400 tonn.
Álsey VE2 1400 tonn.

Guðmundur VE 29 1000 tonn.
Guðmundur VE 29 1000 tonn.

Júpiter ÞH 2300 tonn.
Júpiter ÞH 2300 tonn.

Sighvatur Bjarnason VE 81 1000 tonn.
Sighvatur Bjarnason VE 81 1000 tonn.

Kap VE 4 1400 tonn.
Kap VE 4 1400 tonn.

Aflatölur: Fiskistofa.is
Aflatölur: Fiskistofa.is

Menn eru almennt bjartsýnir á að framhald verði á veiðunum á þessu ári en lítiö er vitað um gönguferli gulldeplunar. Spá menn því hægt verði byrja að veiða gulldeplu á ný seint nú í sumar eða snemma að hausti. Togaraskipstjórar hafa oft á tíðum orðið varirvið gulldeplu úti fyrir allri suðurströndinni og gefiir það mönnum vonir um að enn meira verði hægt að veiða þegar þcssar veiðar verða reyndar að nýju.
Menn eru almennt bjartsýnir á að framhald verði á veiðunum á þessu ári en lítið er vitað um gönguferli gulldeplunar. Spá menn því hægt verði byrja að veiða gulldeplu á ný seint nú í sumar eða snemma að hausti. Togaraskipstjórar hafa oft á tíðum orðið varir við gulldeplu úti fyrir allri suðurströndinni og gefur það mönnum vonir um að enn meira verði hægt að veiða þegar þessar veiðar verða reyndar að nýju.

{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}

Útgáfa síðunnar 20. febrúar 2018 kl. 14:41

ÞORBJÖRN VÍGLUNDSSON SKRIFAR

Norræna gulldepla, nýr nytjafiskur

Haustið 2008 fór Huginn VE 55 til kolmunnaleitar. Veiðum á Íslandssíldinni var lokið og var verið að leita að verkefnum fyrir skipið fram að loðnu. Þrátt fyrir mikla leit á stóru svæði fannst ekki kolmunni í veiðanlegu magni. Þeir rákust samt sem áður á miklar lóðningar suður af Eyjum og köstuðu trollinu í von um að þar leyndist kolmunninn. En eftir að þeir voru búnir að draga í talsverða stund í gegnum lóðið án þess að fá blikk á aflanema var híft. Pokinn reyndist tómur en neðst í honum voru nokkur örsmá kvikindi. Það reyndist vera hin smáa norræna gulldepla eftir nánari rannsókn en ekki var mikið af þeim í þetta skiptið enda voru þeir með kolmunnapokann undir og smaug allur fiskur út um hann.
Það var því í kjölfarið ákveðið að láta rannsaka fiskinn með það í huga hvort hægt væri að nýta hann í bræðslu. Auk þess þurfti að breyta veiðarfærum til þess að geta veitt þennan smáa fisk.
Það var svo í desember sem Huginn VE hélt í sína fyrstu gulldepluveiðiferð. Ekki varð mikill árangur af veiðiferðinni sem slíkri en þrátt fyrir að ekki hafi mikið fiskast þá öfluðu menn sér mikillar reynslu. Þeir slógu undir loðnupokanum í þetta skiptið en möskvarnir í honum reyndust vera of stórir fyrir þennan smáa fisk sem gulldeplan er. Það var því eytt tíma í að þróa veiðarfærin betur og eftir jól og áramót var farið af stað á ný. Nú fór að fiskast betur enda menn komnir með sérútbúna poka fyrir veiðarnar.
Í stuttu máli sagt þá fór alltaf að ganga betur og betur að veiða gulldepluna og tóku aðrar útgerðir að renna hýru auga til veiðanna enda engar loðnuveiðar hafnar og ekki gott útlitið í þeim efnum. Þegar mest var þá stunduðu þessar veiðar flest íslensk uppsjávarveiðiskip en fljótlega um mánaðamótin janúar-febrúar fór að draga úr veiðunum. Megninu af aflanum var landað hér í Eyjum og stoppaði það vissulega í það gat sem loönuleysið hafði myndað. Heildarafli gulldeplu var tæp 39.000 tonn og var Huginn VE aflahæstur yfir landið með um 6.400 tonn. Alls var landað tæpum 19.000 tonnum af gulldeplu hér í Eyjum.
Alls fiskuðu skip frá Vestmannaeyjum 13.480 tonn og skiptist það á þessa leið:
Huginn VE 55 6380 tonn.
Álsey VE2 1400 tonn.
Guðmundur VE 29 1000 tonn.
Júpiter ÞH 2300 tonn.
Sighvatur Bjarnason VE 81 1000 tonn.
Kap VE 4 1400 tonn.
Aflatölur: Fiskistofa.is
Menn eru almennt bjartsýnir á að framhald verði á veiðunum á þessu ári en lítið er vitað um gönguferli gulldeplunar. Spá menn því að hægt verði að byrja að veiða gulldeplu á ný seint nú í sumar eða snemma að hausti. Togaraskipstjórar hafa oft á tíðum orðið varir við gulldeplu úti fyrir allri suðurströndinni og gefur það mönnum vonir um að enn meira verði hægt að veiða þegar þessar veiðar verða reyndar að nýju.