Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Heilsuátakið um borð í Álsey VE

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2018 kl. 13:45 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2018 kl. 13:45 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: r I vetur var tekin ákvörðun um að senda áhöfnina á Álsey VE í heilsuátak. Frumkvæðið átti Sonja Sif Jóhannsdóttir sem hafði unnið að meistaraverkefni sínu hjá...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

r I vetur var tekin ákvörðun um að senda áhöfnina á Álsey VE í heilsuátak. Frumkvæðið átti Sonja Sif Jóhannsdóttir sem hafði unnið að meistaraverkefni sínu hjá útgerðarfyrirtækinu Brimi hf. árið 2007. Verkefnið sneri að heilsu sjómanna en í rannsókn- um hennar kom fram að almennt væri heilsufari sjó- manna verulega ábótavant. Eftir námið hefur hún

haldið áfram með verkefnið og tók nú fyrir strákana um borð í Álsey. Sjómannadagsblaðið heyrði í þeim Sonju, Ólafi Einarsson, karlinum í brúnni á Álsey og mikilvægasta manni hvers skips á sjó, sjálfum kokk- inum, Kristófer H. Helgasyni. Oskastaðan að taka allan flotann i gegn Sonja vinnur nú hjá Tryggingamiðstöðinni og fell- ur átak sem þctta undir hennar verksvið. „Já, ég er forvarnarfulltrúi hjá Tryggingamiðstöðinni og þetta er vinnan mín, að vera með heilsueflingu um borð í þeim skipum sem tryggja hjá okkur. Þannig að það eru áhafnir hringinn í kringum landið að gera góða hluti.“ Af hverju Álsey VE? „ísfélagsmönnum er umhugað um sína starfs- menn, við ákváðum í sameiningu að byrja á einu skipi og Álsey varð fyrir valinu. Vonandi byrjum við á hinum fljótlega. Strákarnir á Álsey eru einstaklega hressir og jákvæðir og því afskaplega gaman að vinna með þcim.“ Hún segir að átakið hjá útgerðinni Brimi hafi gengið mjög vel. „Þetta var mastersverkefni mitt í íþrótta- og heilsufræðum sem bar yfírskriftina „Heilsa sjómanna“. Ég fylgdi báðum áhöfnum á Guðmundi í Nesi eftir í 6 mánuði, fór með þeim á sjó og markmiðið var að bæta mataræðið í gegnum kokkana og auka hreyfingu þeirra bæði á sjó og í landi. Þctta gekk eftir og niðurstöður voru mjög jákvæðar.“ Hún segirað strákarnir um borð í Álsey hafi verið teknir í alls konar skoðanir og próf áður en átakiö hófst. Stefnt sé að því að taka strákana aftur í þessi SJÓMANNADAGSBLAD VESTMANNAEYJA próf núna fyrir sjómannadaginn. „Þaö verður fróö- legt aö sjá árangurinn þá, því þeir hafa verið mjög duglegir hingaö til.“ En ætlarðu aö taka allan flotann í gegn? „Já. þaö er óskastaöan, enda veitir ekki af því aö efla heilsuvitund sjómanna eins og annarra lands- mannajsagöi Sonja aö lokum og er boðin velkomin heim til tíðindamanns Sjómannadagsblaðsins til að taka hann aðeins í gegn. Strákarnir duglegir aö skjóta hver á annan Ólafur Einarsson, skipstjóri á Álsey, segir það hafa verið jákvæöa þróun fyrir alla um borð að taka þátt í átaki Sonju. „Þetta varsem sagt þannig að Sonja Sif Jóhanns- dóttir setti sig í samband við ísfélagið í framhaldi af svipuðu verkefni sem hún var að vinna fyrir Brim. í framhaldi af því, eftir einhverjar fæðingarhríðir, þá erallt liöiö hjá okkur tekið í skoöun. Við byrjuðum uppi á spítala þar sem við fórum í blóðfitumælingu, fitumælingu, hjartalínurit, blástur og allsherjar skoð- un. Eftir það var svo farið í þrekprófí Hressó. Eftir þaö lágu fyrir niðurstöður fyrir hvern og einn. Þegar þessu var lokið fór Sonja yfir niöurstöðurnar, bæði með hópnum og svo hverjum og einum. Mér fannst þetta í raun og veru vera aðalmálið aö fá að vita hvar þeir stóöu og svo var það undir hverjum og einum komið hvaö þeir gerðu.“ Voru allir tilbúnir í slaginn? „Já, það vildu allir auövitað vita hvar þeir stæðu gagnvart blóðfitunni og því öllu. Svo cr auðvitað bara hvcr og einn sinn einkaþjálfari í þessu. Við byrjuðum í vetur og þetta hefur gengið mjög vel. Sonja tók líka mataræðiö aðeins fyrir um borð og hún og Kristó fóru saman yfir mataræðið. Hún kom líka að því að velja tæki í þessa fínu aðstöðu sem við höfum búiö okkur um borð. Það eru nokkrir laghentir í áhöfninni og þeir smíðuðu bara líkams- ræktarherbergi á millidekkinu. Þar erum við með hlaupabretti, hjól, lóð og æfingastöð. Menn eru auðvitað misduglegir að nýta þetta en þessi tæki eru nýtt. Það er líka pressa á þeim sem fara minnst, það cr auðvitaö skotið aðeins á þá og svona fjör í kring- um þetta. Menn eru ckki að keppa sín á milli en strákarnir eru duglegir að skjóta hver á annan, en allt í gríni auðvitað.“ Ekkert betra en að íara í ræktina Óli segir aö menn séu ekkert að slaka á þó þeir séu í landi. „Þetta er okkur í sjálfsvald sett, hvað mcnn gera þegar þeir eru í landi. Við þetta spjall í upphafi og þessi próf þá varð hugarfársbreyting hjá mörgum sem fylgir þeim auðvitað þegar í land er komið. En eins og ég sagði áðan þá er þetta bara undir hverj- um og einum komið að hugsa um heilsuna. Það er enginn neyddur til að gera eitthvað sem hann vill ekki.“ Sérðu einhvern mun á mannskapnum? Eru menn duglegri um borð? „Það er auðvitað svo skammt Iiðið síðan við byrj- uðum og þaö var svo sem ekkert undan neinu að kvarta varðandi vinnulagið um borð. En maður sér náttúrulega að þarna eru nokkrir sem hafa tekið þetta fastari tökum og hafa virkilega lagt af.“ Óli segir að hann hafi áður upplifað það að vera með svona líkamsræktaraðstöðu um borð og því þekki hann þetta vel. „Það er auðvitað alveg frábært að vera með svona þegar þú ert lengi í burtu, jafnvel cinhverjar vikur úti á sjó og jafnvel rólegt yfir veið- unum. Þá er ekkert betra en að geta farið í ræktina og púlað aöeins. En mesta breytingin var mataræðið um borð. Við löguðum það aðeins en sleppum okk- ur auðvitaö aðeins. En við höfum minnkað þetta sósusull eins og var hér á árum áður.“ Hvað með þig persónulega, hvernig finnst þér átakið ganga? „Fyrir mig var þetta kannski ekkert nýtt. Eg hef alltaf hugað vel að heilsunni, hef hreyft mig þegar ég hef haft tök á og hugað að mataræðinu. En mér finnst þcssi hugarfarsbreyting svo jákvæð. Það var SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA nauðsynlegt fyrir okkur að fá utanaðkomandi aðila til að taka á þessu með okkur enda erfiðara fyrir vinnufélaga að segja hver öðrum til. En ég vona auðvitað að þetta sé komið til að vera. Þetta er lífs- stíll og nú erum við meö aðstöðuna til að halda þessu áfram,“ sagði Óli að lokum. Skerum af hér og þar Eins og allir vita er mikilvægasti meðlimur hverr- aráhafnar kokkurinn en Kristófer Helgason, kokkur um borð í Áisey, fékk aukna ábyrgð í átakinu sem nú er í gangi. Kristó, eins og hann er kallaður, seg- ist hafa fengið marga góða punkta hjá Sonju en áður en að átakinu kom, hafi hann verið meðvitaður um hollar matarvenjur. „Mér leist strax mjög vel á þessa hugmynd að fara allir saman í átak. Maður var í sjálfu sér ekk- ert að breyta mjög miklu í eldamennskunni enda hef ég reynt að vera meðvitaður um hversu mikið menn geta leyft sér í góðgætinu. Auðvitað fékk ég punkta um hvað mætti betur fara og viö skárum fínt af á matseðlinum. Við minnkuðum t.d. bakkelsi og kex er nánast horfið úr matsalnum. Allt snarl á milli mála hefur líka stórlega minnkað og er nánast horfið. Ég reyni líka að klípa af eins og ég get, tek prósentulægri osta, fituminni mat og við skerum af hér og þar.“ Kristófer segist hafa orðið var við miklar hug- arfarsbreytingu hjá skipverjum eftir aö átakið fór af stað. „Það er alltaf talað um þetta sem átak en ég vil nú frekar kalla þetta hugarfarsbreytingu. Þetta snýst um að hugsa ööruvísi um mat og vera með öðruvísi áherslur í mataræðinu. Ég held að allir hafi verið sáttir við að prófa þetta enda er þetta sameig- inlegtátak. Ætli það séu ekki bestu meðmælin með þessu átaki að nú, nokkrum mánuðum eftir að við byrjuðum, þá er helvítis kokkurinn ennþá um borð,“ sagði Kristó og hló. Hann segir ennfremur að hugarfarsbreytingin sé vitanlega misjöfn milli skipverja. „Sumir voru auð- vitað meðvitaðir um mataræðið á meðan aðrir voru þaðekki. Svo taka menn misjafnlega á svona átaki. En við erum t.d. með sjoppu hér um borð og sal- an þar hefur hrunið. Ég bakaði mun meira en áður og þá var barist um sneiðarnar. En núna er alltaf afgangur ef ég baka.“ Eruð þið þá að leyfa ykkur eitt og annað þrátt fyrir átakið? „Já, við fáum okkur alltaf eitthvað gott þegar ein- hverá afmæli. Svo borðum við auðvitað góðan mat um helgar en hann þarf ekkert aö vera fitandi. En við leyfum okkur stundum eitthvað gott til að brjóta upp rútínuna, sérstaklega ef veiðar ganga illa.“ SJÓMANNADAGSBLAD VESTMANNAEYJA Olíusparnaður í sumar Kristó segir að aðstaðan um borð til líkamsrækt- ar sé orðin mjög góð. „Nú erum við komnir með líkamsræktarklefa. Hann breytti hclling fyrirokkur og hann hefur verið vel nýttur enda góð tæki þarna. Annars er það mín skoðun að mataræðið sé stærsti þátturinn í þessu. Ég gæti trúað að þetta sé 70% mataræði og 30% hreyfing. Menn geta auðvitað alveg sloppið í gegnum daginn án þess að bæta ein- hverju á sig án þess að taka mataræðið eitthvaö sér- staklega í gegn. En menn hér um borð eru mjög meðvitaðir um mataræðið eins og ég sagði áðan. Sem dæmi hefur ávaxta- og grænmetisát aukist gríð- arlega, bæði með öðrum mat og sem snarl. Ég vona bara að þessi hugarfarsbreyting sé komin til að vera. Þetta er orðinn hálfgerður lífsstíll og þótt menn fari í land þá hætta þeir ekkert að hugsa út í þessa hluti. En lykilatriöi í þessu hjá okkur er að þetta eru eng- ar öfgar. Við löguðum aðeins til í mataræðinu og menn minnka kannski skammtana hjá sjálfum sér.“ Hefurðu orðið var við einhverjar breytingar í kjöl- far átaksins? „Menn eru kannski hressari en kannski helst að það hefur orðið gífurlegur olíusparnaður í rekstri skipsins og stefnir í enn meiri sparnað þar í sumar,“ sagði Kristó að lokum, hlæjandi. Júlíus G. Ingason 25