Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2006/Slysavarnadeildin Eykyndill 70 ára

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. mars 2017 kl. 10:36 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. mars 2017 kl. 10:36 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

HUGRUN MAGNUSDOTTIR

Slysavarnadeildin Eykyndill 70 ára 25. mars 2004

Það var 25. mars 1934 að boðað var til stofnfundar kvennadeildar Slysavarnafélags íslands í Vest-mannaeyjum. Var það gert að til-stuðlan Páls Bjarnasonar, skólastjóra, konu hans, Dýrfinnu Gunnarsdóttur kennara, Olafs O. Lárussonar, héraðs-læknis, konu hans, Sylvíu Guð-mundsdóttur, Katrínar Gunnarsdóttur, kennara o.fl. kvenna hér í bæ. Hlaut deildin nafnið Eykyndill og skipuðu eftirtaldar konur fyrstu stjórnina: Sylvía Guðmundsdóttir, formaður, Dýrfinna Gunnarsdóttir, ritari og Katrin Gunnarsdóttir,   gjaldkeri

voru: Elínborg Gísladóttir, Magnea Þórðardóttir, Soffía Þórðardóttir og Þorgerður Jónsdóttir. A þessu fyrsta ári í sögu félagsins gengu 267 konur í það en þá var íbúatala Eyjanna 3558. Strax í upphafí var í mörg horn að líta og voru konurnar mjög vakandi fyrir því sem betur mátti fara í slysavarna-málum byggðarinnar. Langt mál væri að tína allt upp sem Eykyndill kom að en í fyrstu árskýrslunni, fyrir árið 1934, kemur m. a. eftirfarandi fram. LJm lokin hélt félagið skemmtun sem gaf af sér 70 krónur og átti félagið þá 600 krónur í sjóði. Samþykkt var að leggja 100 krónur í sundlaugina og að senda Slysavarnafélagi lslands 500 krónur. Ráðstafanir til slysavarna voru ýmsar. Bæjarstjórnin var beðin að setja ljós á Stakagerðistúnið til þess að börn gætu verið þar með sleða sína í stað þess að vera í slysahættu á götum úti. Ljós komu upp fáum dögum síðar. Héraðslæknirinn, Ólafur Ó. Lárusson, var fenginn til að veita ókeypis tilsögn í endurlífgun og notkun lyfja sem fylgdu hverjum báti. Fjörutíu og sex sjó-menn tóku þátt í þessu námi sem þóttist takast vel. Samþykkt var, árið 1935, að láta gera verðlauna-grip fyrir afrek í stakkasundi og var Ríkarði Jónssyni falið að smíða gripinn. Það er fagurlega útskorinn veggskjöldur úr tré sem vannst ekki til eignar en reglur voru settar í samráði við íþróttaráð Vestmannaeyja. Keppt var um hann í stakkasundi á sundmóti Eyjanna ár hvert. Sigurvegarinn þurfti einnig að kunna björgunarsund, hafa stundað sjó-mennsku í eina vetrarvertíð og hafa lögheimili í Vestmannaeyjum. Afram var haldið að veita fé til námskeiða í sundkennslu fyrir sjómenn, eldvörnum o.fl. Aðstoð var veitt til að kaupa talstöðvar í báta og komið var upp miðunarstöð í Stórhöfða vegna flotans. Var hún starfrækt um árabil. Ljóskastarar

voru gefhir í björgunar-báta og á bryggjur. Ljós-bauju var komið fyrir við Eiðið að tilstuðlan félagsins og brunakaðlar í hús. Árið 1950 hófu Eykyndilskonur fjár-söfnun til byggingar skipbrotsmannaskýlis á Faxaskeri og komst það upp það ár. Alltaf síðan hefur félagið séð um búnað og vistir í skýlið. Þegar fyrri Lóðsinn var smíðaður, lagði Eykynd-ill fé til verksins og alla tíð hefur hann lagt fram fé til kaupa á öryggis-tækjum og öðrum búnaði í þá báöa, þann eldri og þann nýrri, sem smíðaður var hér í Skipalyftunni 1998. Björgunarfélag Vestmannaeyja og Hjálpar-sveit skáta, hér í Eyjum, styrkti Eykyndill bæði fyrir og eftir sameiningu þeirra. Arlega voru styrkir sendir Slysavarnafélagi lslands og voru Eykyndils-konur þar oft fremstar í flokki með miklar peningaupphæðir. Slökkvilið Vestmannaeyja hefur verið aðstoðaö við kaup á tækjum, einnig Sjúkra-húsið og Dvalarheimili aldraðra, Hraunbúðir. Umferðarmál hafa alltaf verið ofarlega á baugi innan félagsins. Börnum í grunnskólunum eru gefin endurskinsmerki á hverju ári. Reiðhjóladagar eru haldnir með lögreglu og minnast má á umfer-ðarljósin, á gatnamótum Strandvegar og Heiðar-vegar, sem félagið færði bænum að gjöf. Gaman er lika að geta þess að það var fyrir ábendingar frá Eykyndli að ljós voru sett í bryggjuþilin við alla stiga í höfninni. Fleiri hafnir hafa svo fyigt þessu fordæmi héðan. Árið 1977 var ráðist í að kaupa félagsmiðstöðina Bása ásamt fjórum öðrum félög-um hér í bæ. Var það mikil lyftistöng fyrir deildina að fá þarna fastan samastað. Farið hefur verið í helgarferðir 7-8 sumur og hefur það verið feikna gaman. Flest ár hafa verið haldnir 5- 6 félagsfundir að vetrinum til og stjórnarfundir álíka margir. Aður en Slysavarnafélag Islands og önnur björgunar-félög sameinuðust og til varð Landsbjörg, sam-eiginlegt félag allra slysavarnadeilda í landinu, sendu Eykyndilskonur árlega 2/3 af tekjum félags-ins til Slysavarnafélagsins en eftir sameininguna fara allar tekjur félagsins beint til öryggis- og björgunarmála hér í Eyjum. Hér hefur verið stiklað á stóru í starfi Eykyndils í rúm sjötíu ár og fátt verið talið. En öll þessi starf-semi hefur byggst á elju og dugnaði félagskvenna og velvilja og skilningi bæjarbúa og fyrirtækja hér á staðnum. Varla munu aðrir betur skilja nauðsyn slysavarna en við sem búum á þessari yndislegu, eyju en oft á tíðum erftðri, þar sem sjósókn hefur verið stíf á erfiðu hafsvæði þegar vindar blása og öldur æða. Gaman er að geta þess að elsta konan í Eykyndli er 100 ára. Það er Ragnheiður Jónsdóttir frá Þrúð-vangi og er hún stofnfélagi. A aðalfundi félagsins 27. mars, 2006, var stjómarkosning. Ur stjórn gengu Guðríður Þorvaldsdóttir, gjaldkeri, Guðný Stefnisdóttir, ritari og Hugrún Magnúsdóttir, for-maður en hún hefur verið 10 ár í stjórn, þar af 6 ár formaður. Ný stjórn var kosin: Guðftnna Sveins-dóttir, formaður, Kristín Elva Elíasdóttir, gjaldkeri og aðrar eru: Bára Guðmundsdóttir, Guðmunda Hjörleifsdóttir, Sigurbjörg K. Oskarsdóttir og Elísa Elíasdóttir. Þær eiga eftir að skipta með sér störf-um. Það er ábyggilegt að meðan þörf er fyrir slysavamir í Vestmannaeyjum munu Eykyndils-konur starfa af krafti áfram sem hingað til. Aldrei verður slakað á í því að bæta öryggi okkar hér sem allra mest bæði á sjó og landi. Hugrún Magnúsdóttir.

INGA RQS GUNNARSDÓTTIR


Túnfiskveiðar í Miðjarðarhafi

r - Viðtal við Ægi Armannsson

S jómannslífið hefur sínar góðu og slæmu hliðar eins og allt