„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2002/ Minning látinna“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 48: Lína 48:
Í nóvember árið 2000 var ákveðið að leggja Álseynni, mannskapnum sagt upp og báturinn settur á söluskrá. Tók Hörður því afar illa og eitt er víst að þeir sem að þessum gjörningi stóðu og réðu ferð eftir fráfall Sigurðar heitins Einarssonar áttu ekki upp á pallborðið hjá honum því þetta voru aðgerðir sem ekki voru í anda Sigurðar. Hann hefði staðið öðruvísi að málum.<br>
Í nóvember árið 2000 var ákveðið að leggja Álseynni, mannskapnum sagt upp og báturinn settur á söluskrá. Tók Hörður því afar illa og eitt er víst að þeir sem að þessum gjörningi stóðu og réðu ferð eftir fráfall Sigurðar heitins Einarssonar áttu ekki upp á pallborðið hjá honum því þetta voru aðgerðir sem ekki voru í anda Sigurðar. Hann hefði staðið öðruvísi að málum.<br>
Þarna lauk skipstjóraferli Harðar, heldur fyrr og á annan hátt en hann hefði kosið. Eftir það vann hann ýmis störf í landi og einnig við afleysingar til sjós t.d. um borð í Herjólfi þar sem honum líkaði vel.
Þarna lauk skipstjóraferli Harðar, heldur fyrr og á annan hátt en hann hefði kosið. Eftir það vann hann ýmis störf í landi og einnig við afleysingar til sjós t.d. um borð í Herjólfi þar sem honum líkaði vel.
Það kom svo eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar sú fregn barst að Hörður hefði orðið bráð-kvaddur á heimili sínu þann 13. október s.l.. Þetta var svo sem í hans anda að kveðja þetta jarðlíf jafn snaggaralega og hann gerði því hjá honum urðu hlutirnir að ske hratt og fljótt og það helst í gær.
Kjarninn í liði hans undanfarin ár voru t.d. tengdasonur hans, Grettir Guðmundsson, sem var með honum samfellt í 19 ár. Siggi Sveins, Oddgeir Úraníusson, Siggi Þór og Heimir Freyr. Vil ég fyrir þeirra hönd þakka honum góðar samverustundir bæði í leik og starfi.
Ég kveð kæran vin og félaga. Megi hann ganga á Guðs vegum.
Elías V. Jensson.
Sigfús Sveinsson
F. 22. febrúar 1916 - D. Il.júní2001
Sigfús Sveinsson fæddist þann 22. febrúar 1916 í V-Eyjarfjallahreppi. Foreldrar hans voru hjónin Sveinn Sveinsson og Guðleif Guðmundsdóttir. Kona Sigfúsar var Unnur Guðjónsdóttir, leikkona og húsmóðir og barn þeirra Katrín. Auk þess áttu þau fóstursonin, Inga Þorgrím Pétursson.
Sigfús gekk í farskóla undir V-Eyjafjöllum, tók minna mótorvélstjórapróf 1941 og smáskipapróf 1943 í Vestmannaeyjum. Hann var vélstjóri hjá Helga Benediktssyni á mb. Auði VE 3 1941-42 og
á mb. Skíðblaðni 1942-1943, 2/1 vélstjóri á Metu VE 236 1943-1945, vann á Bifreiðaverkstæði Hreggviðs Jónssonar 1946-1948 en var jafnframt háseti á Álsey VE 1947-1948. Háseti var hann hjá Bæjarútgerð Vestmanneyja á bv. Elliðaey 1948-1950, vann í Vélsmiðjunni Magna 1954-1955, var verkstjóri í Vinnslustöðinn 1956-1963.
Árið 1963 hóf Fúsi hjá störf við veiðafæragerð hjá Neti ehf , en þá höfðu þeir Finnbogi Olafsson, Óskar heitinn Haraldsson og Júlíus Hallgrímsson nýlega stofnað fyrirtækið. Núverandi eigendur tóku síðan við rekstrinum árið 1985 og minnumst við Fúsa með hlýhug og virðingu. Fúsi vann hjá Neti þar til hann lét af störfum tæplega áttræður að aldri. Við vinnufélagar hans í Neti höfum margs að minnast frá árunum okkar með Fúsa. Hann var skemmtilegur maður, víðlesinn og fróður og var hann óspar á að miðla þeim fróðleik til samstarfs-manna sinna. Fúsi var natinn og vandvirkur neta-maður og viljum við samstarfsmenn hans þakka honum fyrir ánægjuleg ár og gott samstarf.
Vinnufélagar og eigendur í Neti ehf.
Friðgeir Guðmundsson F. 21. júlí 1916 - D. 6. júní 2001
Friðgeir Guðmundsson fæddist í Rekavík bak Látur21. júní 1916.
Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Pálma-son og Ketilríður Þorkelsdóttir. Friðgeir var næstyngstur í hópi 14 alsystkina, sem öll eru látin. Einnig átti Friðgeir fjögur hálfsystkini og eru þau öll á lífi. Friðgeir var kvæntur Elínborgu Dagmar Sigurðardóttur, en hún lést árið 1991. Friðgeir og Elínborg eignuðust átta börn. Einn dreng, nýfædd-an og óskírðan, misstu þau. Hin eru: Svava, gift
Sævaldi Pálssyni, Kjartan, kvæntur Þorgerði Þorgeirsdóttur, Sigríður, gift Lárusi Lárussyni, Sigrún, gift Pétri Ólafssyni, Elínborg, gift Kristjáni Valgeirssyni, Sólveig, gift Böðvari I. Benja-mínssyni og Hrefna, gift Jónasi H. Jónssyni.
Ég vil með nokkrum orðum minnast tengdaföður míns og vinar Friðgeirs Guðmundssonar. Geiri, eins og hann var alltaf kallaður, var ættaður á Rekavík á Vestfjörðum. Hann var háseti á m/b Isbirninum IS 15 er hann strandaði og sökk þann 7. mars 1940 fyrir utan Skálavík. Eftir þann atburð kom hann til Vestmannaeyja, þá ungur maður, á vertíð og fór fyrir honum eins og mörgum öðrum, bæði fyrr og síðar, að hann hitti lífsförunautinn og settist þar að.
Hann var lengstum sjómaður á meðan hann var í Eyjum. Fyrsti báturinn, sem hann réri á, var Isleifur VE 63. Þar gerðist hann beitumaður í forföllum annars manns en síðar háseti og fór einnig með ísleifi á sfldveiðar. Þá var Ármann á Látrum skip-stjóri, síðar kallaður Armann á Helgu RE. Siðar fór Friðgeir á sfldveiðar með m/b Skaftfellingi VE og vann líka við smíðar á báti sem hét Jökull VE 163. Hann var smíðaður í Sælaslipp og fór Friðgeir með þessum báti á síld eitt sumar. Árið 1953 fórst þessi bátur á" vetrarvertíð, hét hann þá Guðrún VE. Lengst var Friðgeir þó á Reyni VE 15 með þeim bræðrum Páli og Júlíusi Ingibergssonum, eða í um 15 ár. A milli vertíða vann hann í slippnum við bátaviðgerðir. Seinna fór hann í Iðnskólann og tók þar smíðanám í kvöldskóla. Hann sneri sér síðan alfarið að smíðum, fyrst í Eyjum og síðar í Kópavogi. Þeir eru ófáir naglarnir sem hann hefur neglt, enda var maðurinn duglegur með afbrigðum. Þegar ég sem ungur maður fór að eltast við elstu dótturina, Svövu, var ég strax tekinn í hópinn og á
ég margar góðar minningar frá þeim tíma. Fjöl-skyldan stór - börnin mörg. Sennilega var ekki mikið til af peningum en því meira af hjartahlýju, gestrisni og gleði. Geiri var alltaf kátur og oft var stutt í hláturinn. Bogga alltaf að hella upp á könn-una og reiða fram eitthvert meðlæti og veit ég að margir nutu af. Vil ég hér og nú þakka fyrir mig.
Arið 1962 fluttist fjölskyldan úr Eyjum að Borgarhólsbraut 20 í Kópavogi og átti þar heima til fjölda ára. Síðustu ár dvaldi Geiri í hjúkrunarheim-ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi og var vel annast um hann þar. A starfsfólk þar miklar þakkir skildar.
Sævald Pálsson.
Kristján Thorberg Tómasson F. 10. aprfl 1916 - D. 11. apríl 2001
Kiddi á Garðstöðum var fæddur á Seyðisfirði 10. apríl 1916. Foreldrar hans voru Margrét Sigur-þórsdóttir og Tómas Skúlason. Einn bróður átti Kiddi, Sigþór Hersi.. Þegar Kiddi var 10 ára flutti Margrét til Vestmannaeyja og gerðist ráðskona hjá Jóni Pálssyni á Garðstöðum sem var ekkjumaður með 7 börn. Með Margréti komu Kiddi og systur-sonur hennar Grétar Karlsson sem hún ól upp. Sigurþór Hersir fór annað í fóstur. Þau Jón og Margrét giftust síðar. Á Garðstöðum voru 2 fjöl-skyldur. Hin var fjölskylda Olafs Eyjólfssonar og Auðbjargar Valtýsdóttur. Þau áttu tvo syni, Óskar og Jón Guðleif. Yngsti sonur Jóns, Eyjólfur, var alinn upp hjá þeim Olafi og Auðbjörgu. Öll þessi börn ólust upp eins og um einn stóran systkinahóp væri að ræða. Kölluðu hvert annað bræður og syst-ur. Kiddi giftist Lydiu Aniku Einarsdóttur 23. desember 1955. Hún var fædd 13. agúst 1912 og lést 20. april 1969. Hún átti eina dóttur, Eddu Einars Andrésdóttur, sem var gift Hávarði Ás-björnssyni, stýrimanni, sem varð bráðkvaddur þrí-tugur að aldri. Síðari eiginmaður Eddu er Jón Arinbjörn Asgeirsson. Þau Lydia og Kiddi áttu heima hér í Eyjum á Raufarfelli. Þegar gosið hófst 1973. fluttist Kiddi með Jóni og Eddu til Grinda-víkur. Hann bjó þar hjá þeim og vann í saltfiski meðan heilsan leyfði. Síðustu árin var hann á elli-heimilinu Víðihlíð.
Strax á unga aldri varð Kiddi sjómaður enda ekki langt að fara. Garðstaðir voru sunnan við Strandveginn og norðan við hann voru pallarnir, krærnar og bryggjurnar. Hann var oftast kokkur og lengst hjá Óskari bróður sínum á Garðstöðum á Sigurfaranum, einnig á Gullborginni hjá Binna í Gröf og fleiri. Flest hans ár voru á sjónum.
Kiddi var húmoristi af bestu gerð, barngóður og sérstakur persónuleiki. Hann stóð sína plikt og klikkaði ekki.
Svo unglegur og frískur þótti hann í Víðihlíð að starfstúlkurnar þar sögðu að hann yrði örugglega 100 ára. Hann svaraði þá skýrt og ákveðið: „Eg ætla að verða 85 ára og ekki degi eldri". Hann stóð við það upp á dag og kvaddi daginn eftir 85 ára afmælið sitt. Hann var vanur að standa við sitt.
Útför hans fór fram frá Landakirkju 18. apríl 2001.
Blessuð sé minning afa míns Kidda á Garðstöðum.
Hjalti Hávarðarson
Rune Verner Sigurðsson F. 27. aprfl 1961 - D. 5. des 2001
Rune Verner Sigurðsson, yfirvélstjóri, fæddist í Virum í Danmörku 27.apríl 1961. Hann fórst með Ófeigi VE hinn 5.desember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Solvejg Bisballey, f 26.3. 1941, og Sigurður Karlsson f. 9.3. 1931. Systur hans eru Linda Laufey, f. 23.8. 1954, Minný Bernódía f. 2.5. 1963, d.11.1. 1966, og Halla María, f. 20.3. 1965. Eftirlifandi kona Rune er Theodóra Einarsdóttir, f. 2.9. 1961. Börn þeirra eru Sigrún Ósk, f. 7.10. 1996, látin sama dag. Sígurberg Óskar,f .21.10. 1999. Fyrir átti Rune dótturina Tönju Rut, f. 16. 1. 1986. Rúni var fæddur í Virum í Danmörku og þar átti hann heima fyrsta árið. Eftir það fluttist hann með foreldrum sínum til Islands og bjuggu þau í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Foreldrar hans skildu þegar Rúni var 7 ára. Flutti mamma hans þá út til Danmerkur en Rúni ólst upp hjá föður sínum í Vestmannaeyjum. Fluttust þeir til Hveragerðis í gosinu og var Runi þar til 17 ára aldurs er hann fór til Danmerkur til að læra vélsmíði og síðar hlaut hann vélstjórnarréttindi í
Vestmannaeyjum. Rúni fór snemma til sjós og var ýmist vélstjóri á togbátum eða netabátum. Ég kynntist Rúna ekki fyrr en í mars 2001 þegar ég byrjaði á Ofeigi VE. Þa sá ég strax hvað Rúni hafði góðan mann að geyma. Við spjölluðum oft saman um bfla, Rúni hafði mikið vit á bflum og var það oft skemmtilegt spjall. Rúni var yfirvélstjóri og var hann alltaf fyrstur í aðgerðina á sinn stað því Rúni átti sinn stað í aðgerðinni og sitt sæti í borðsalnum. Þá var alltaf stutt í brosið hjá Rúna og kímnin ekki langt undan. Einnig var gaman að heyra þegar hann var að tala við Sigurberg litla í símann. Oft vildi sá litli ekki hætta því að hann hefur svo gaman af símum. Fjölskyldan var Rúna alltaf ofarlega í huga og talaði hann mikið um velheppnaða Portúgalsferð fjölskyldunnar. Rúni ætlaði að vera kokkur á nýja Stíganda og var hann stundum gestakokkur um borð, sannkallaður listakokkur. En hún var örlaga-rík nóttin þann 5. des. síðastliðinn þegar Ofeigur VE sökk á örskotsstundu 40 sjómflum austur af Vestmannaeyjum. Við björguðumst átta en Rúna var saknað og fannst hann þann 27.jan.síðastliðinn. En eftir lifir minningin um góðan dreng og er hans enn sárt saknað. Bið ég góðan guð um að styrkja fjölskyldu og vini á þessum sorgartímum.
Birgir Stefánsson
Sigurbergur Bjarnfreðsson
F. 30. sept. 1916 - D. 8. febrúar 2002
Sigurbergur Bjarnfreðsson fæddist að Efri-Steinsmýri í Meðallandi Vestur-Skaftafellssýslu 30. september 1916, sonur hjónanna Ingibjargar Sigurbergsdóttur og Bjarnfreðs Ingimundarsonar. Þar ólst hann upp í stórum systkinahópi en þau systkin voru 20 talsins.
Ungur þurfti Bergur, en það var hann alltaf kallaður, að fara að vinna og hjálpa til við fram-færslu yngri systkina sinna. Þá fór hann að stunda vetrarvertíðir héðan frá Vestmannaeyjum og réðst fljótlega í skipsrúm á gömlu Freyju VE 260 hjá Sigurði Sigurjónssyni (Sigga á Freyjunni) og reri með honum alla sína sjómennsku tíð. En á sumrin stundaði hann vinnumennsku í sveit, lengst af hjá séra Bjarna Sigurðssyni á Mosfelli. En um leið og fór að hausta var Bergur mættur um borð í Freyju. Af gömlu Freyju fór hann með Sigga á Þráin VE 7 sem var 83 tonna eikarbátur. Árið 1954 kemur ný Freyja VE 260 til Eyja og á henni er Bergur þar til Siggi selur bátinn og hættir útgerð um 1970. Svo skemmtilega vildi til að eftir að Freyjan var seld var hún látin heita Sigurbergur.
Bergur var harðduglegur sjómaður og var sagt að Siggi hefði oftrú á Bergi. T.d. mátti aldrei legg
1.368

breytingar

Leiðsagnarval