Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1988/Suðurey VE aflahæst vertíðarbáta

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. febrúar 2019 kl. 14:47 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. febrúar 2019 kl. 14:47 eftir Valli (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Suðurey VE aflahæst vertíðarbáta



Sigurði Georgssyni og áhöfn hans á Suðurey VE fellur í skaut sæmdarheitið Fiskikóngur Vestmannaeyja 1988, með rétt 1200 tonna afla á vetrarvertíð. Afli þessi er einnig sá mesti yfir landið á nýliðinni vertíð. Meðfylgjandi mynd sýnir áhöfn Suðureyjar VE ásamt skipstjóra.


Hrekkjalómar á hálum ís



Hrekkjalómafélagið í Vestmannaeyjum er félagsskapur sem gert hefur garðinn frægan a endemum. Bellibrogð þeirra og buslugangur er oft með eindæmum.
Meðfylgjandi myndir sýna er þeir sturtuðu heilum vörubílsfarmi af ís fyrir framan Tóta Turn og lokuðu um tíma allri aðkomu að versluninni, en kaupmaður brá skjótt við og efndi til útsölu á ís.