Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Jú, við þökkum þér, Ási i Bæ

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. apríl 2017 kl. 15:33 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. apríl 2017 kl. 15:33 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jú, því við þökkum þér, Ási í Bæ'''<br> Hann reri á kænum, á kolgráum sænum.<br> Keipaði færum að fiskununum vænum.<br> Stundum var lítið. en oftar mjög mik...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jú, því við þökkum þér, Ási í Bæ

Hann reri á kænum, á kolgráum sænum.
Keipaði færum að fiskununum vænum.
Stundum var lítið. en oftar mjög mikið.
Hver var hann þessi sem studdist við prikið?

    Jú. það var hann Ási.
    það var hann Ási.
    það var hann Ási í Bæ.

En hver annars var hann, og hvort mun hann lifa?
Kann einhver að spyrja, ég segi og skrifa.
Á meðan að sæfarar sigla enn strikið
munu þeir þekkj'ann sem studdist við prikið.

    Því það var hann Ási.
    það var hann Ási.
    það var hann Ási í Bæ.

Og þeir sem að skemmta sér. syngja og tralla.
sækja í söngva og ljóð svona „kalla“,
En þeir munu varla skilja hve mikið.
erfitt oft reyndist að styðjast við prikið.

    Við þökkum þér Ási.
    þökkum þér Ási.
    þökkum þér Ási í Bæ.
Kveðja frá Páli Sigurðarsyni.