Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Jú, við þökkum þér, Ási i Bæ
Jú, því við þökkum þér, Ási í Bæ
Hann reri á kænum, á kolgráum sænum.
Keipaði færum að fiskununum vænum.
Stundum var lítið. en oftar mjög mikið.
Hver var hann þessi sem studdist við prikið?
- Jú. það var hann Ási.
- það var hann Ási.
- það var hann Ási í Bæ.
- Jú. það var hann Ási.
En hver annars var hann, og hvort mun hann lifa?
Kann einhver að spyrja, ég segi og skrifa.
Á meðan að sæfarar sigla enn strikið
munu þeir þekkj'ann sem studdist við prikið.
Því það var hann Ási. það var hann Ási. það var hann Ási í Bæ.
Og þeir sem að skemmta sér. syngja og tralla.
sækja í söngva og ljóð svona „kalla“,
En þeir munu varla skilja hve mikið.
erfitt oft reyndist að styðjast við prikið.
Við þökkum þér Ási. þökkum þér Ási. þökkum þér Ási í Bæ.
Kveðja frá Páli Sigurðarsyni.