Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/ Sjómannadagur og sjómannadagsráð - Annáll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. janúar 2017 kl. 11:08 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. janúar 2017 kl. 11:08 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: <br><center>'''Kristinn Sigurðsson'''</center><big><br> <big><big><center>'''Sjómannadagurinn og sjómannadagsráð'''</center></big></big><br> <big><big><big><center'''Annáll'''<...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


Kristinn Sigurðsson


Sjómannadagurinn og sjómannadagsráð


<centerAnnáll

Sjómannadagurinn er fyrst haldinn 1940. Fyrsti fundur í sjómannadagsráöi Vest-mannaeyja var haldinn 15.maí 1944. Næster haldinn fundur 25. maí 1944 og er á þeim fundi tilbúin dagskrá sjómannadagsins4. júní 1944: Kl. 10 f.h. Við Samkomuhús Vestmanna-eyja. Lúðrasveitin leikur (undir stjórn Odd-geirs Kristjánssonar). Hátíðin sett. Páll Þorbjörnsson. Karlakór Vestmannaeyja (stjórnandi Helgi Þorláksson). Skrúðganga í Landakirkju Guðþjón- usta. Kl. 2 e.h. Kappróður í Friðarhöfn. Stakkasund. Reiptog. Knattspyrna o.tl. á íþróttavellinum. Kl. 5 e.h. Kvikmyndasýning íbáðum húsum. KI. 8.30. Barnakórinn Smávinir syngur (stjórnandi Helgi Þorláksson). Ræðuhald. Afhending verðlauna. Lúðrasveitin leikur (stjórnandi Oddgeir Kristjánsson). Dans. Fyrsta sjómannadagsráð skipuðu þessir menn: Ársæll Sveinsson, Fögrubrekku. Óskar Gísalaon. Heimagötu. Guðmundur Vigfússon, Helgafellsbraut. Sighvatur Bjarnason, Asi. Guðmundur Kristjánsson, Lágafelli. Alfreð Þorgrímsson, Sólheimum. Guðleifur Ólafsson, Laufási. Kjartan Jónsson, Faxastíg 8. Kjartan Bjarnason, Djúpadal. Sigurður Stefánsson. Löndum. Vigfús Guðmundsson, Vallartúni. Guðmundur Helgason, Hjalteyri. Arið 1945 var stjórn sjómannadagsráðs skipuð þessum mönnum: Formaður: Árni Þórarinsson. Gjaldkeri: Vigfús Guðmundsson. Ritari Friðþór Guðlaugsson. Á þessu ári var samþykkt að smíða tvo kappróðrarbáta og nefnd kosin til að sjá um framkvæmdir: Sighvatur Bjarnason, Sigurð-ur Stefánsson og Guðleifur Ölafsson. Á fundi þessum var einnig rætt um væntanlegt minn-ismerki hrapaðra og drukknaðra sem var hugsað sem kapella. Kosin var nefnd í málið: Hannes Hannesson, Gísli Sveinsson og Alfreð Þorgrímsson. 4. febrúar 1945 var fundur haldinn og rætt frekar um minnismerkið og einnig rætt um smíði kappróðrarbáta sem ekki yrði hægt að smíða fyrir næsta sjómannadag. Eg mun í þessu spjalli aðeins draga fram það sem mér þykir markvert í starfi sjó-mannadagsráðs og birta dagskrár með nokkru millibili til að menn átti sig frekar á þróun mála. 19. nóvember 1945 var enn rætt um smíði kappróðrarbáta og upplýsti Sighvatur Bjarnason að efnið í þá væri komið um borð í m/s Helga. Þá bauð Sighvatur að smíða mætti bátana á lofti í fiskhúsi hans gegn 500 kr. Ieigu, þar í falið rafmagn. Einnig var rætt um byggingu skýlis fyrir bátana og aðrar eignir sjómannadagsráðs. A fundi, sem haldinn var 20. janúar 1946, skýrði Sighvatur Bjarnason frá því að falt væri hús Reimars Hjartarsonar (sem er inni í Botni) fyrir 3000 kr. Var samþykkt að kaupa húsið. í stjórn voru kosnir þessir menn: Formaður: Þorsteinn Jónsson. Gjaldkeri: Vigfús Guðmundsson. Ritari: Sigurður Kristinsson Á fundi, sem haldinn var 24. febrúar 1946, skýrði formaður frá því að búið væri að kaupa hús Reimars Hjartarsonar og hefði kaupverðið verið 2800 kr., sem búið væri að greiða og húsið þinglesin eign sjómannadag-sins. Þá var samþykkt að tryggja bátana fyrir 20.000,00 kr. Einnig var rætt um málingu á bátunum. A fundi 3. nóvember 1946 mælir Páll Þorbjörnsson fyrir væntanlegri blaðaútgáfu sjómannadagsins og voru kosnir í fram-kvæmdanefnd: Páll Þorbjörnsson, Þorsteinn Jónsson og Sigurður Stefánsson. Þá var Hannesi Hannessyni falið að útvega auglýs-ingar í blaðið. Árið 1946 voru átta fundir haldnir. Aðalfundur fyrir árið 1946 varhaldinn 13. apríl 1947. A honum var rætt um blaðaút-gáfu. Til að fjármagna það fyrirtæki þyrfti að safna auglýsingum frá Reykjavík og Vest-mannaeyjum. í stjórn voru kosnir: formaður: Jónas Sigurðsson, gjaldkeri: Guðmundur Helgason og ritari: Sigurður Kristinsson. Miðvikudaginn 2. júní 1948 var aðalfund-ur haldinn fyrir árið 1947 og var á þeim fundi kosið í stjórn, formaður: Sighvatur Bjarna-son, gjaldkeri: Gísli Sveinsson og ritari: Sig-urður Kristinsson. Á sjómannadaginn 1948 keppir kvennalið í fyrsta skipti í kappróðri. Á fundi, sem haldinn var 5. maí 1950, var samþykkt að bera kostnað af ljósaútbúnaði minnismerkisins. A aðalfundi 1950 var stjórn sjómanna-dagsráðs kosin: formaður Júlíus Sigurðsson, gjaldkeri: Gísli Sveinsson og ritari: Bjarni Kristjánsson. 1951 1. maí 1951. Aðalfundur. Stjórn kosin: formaður Júlíus Sigurðsson, gjaldkeri: Guð-mundur Helgason, ritari: Björn Kristjánsson, Símon Bárðarson. 21. maí 1951 var samþykkt að sækja um lóð í svonefndri Skansfjöru undir hús fyrir kappróðrarbátana. 25. maí 1951 er fyrsta heimildin um blaðaútgáfu á vegum sjó-mannadagsráðs og er þá rætt um blaðið Sjómanninn sem var fyrirrennari Sjómanna-dagsblaðs Vestmannaeyja. Samþykkt að gefa í minnismerki drukkn-aðra og hrapaðra manna kr. 5.000,- og að auki skuldabréf vegna togarakaupa Vest-mannaeyjabæjar 1946 að upphæð 5.000,-auk vaxta sem féllu í gjalddaga 1949. Á sama fundi var ákveðið að gefa 6.000,- krónur til Elliheimilis Vestmannaeyja og af þeim pen-ingum verði greiddir munir sem keyptir hafa verið, klukka og loftvog, og þeir settir upp í herbergi í norðurenda hússins á annarri hæð sem tileinkað hefur verið sjómönnum. Þá var á sama fundi kosin fimm manna nefnd til að undirbúa byggingu bátaskýlis á Skansinum og einnig átti sama nefnd að vinna að því að selja bátaskýli sjómannadagsins. 1952 Formaður: Helgi Bergvinsson. Gjaldkeri: Sigurður Ólafsson. Ritari: Hafsteinn Stefánsson.

Talið frá vinstri: Marteinn Guðjónsson Dyrhólum, Valtýr Snœbjörnsson, Oilclur Olafsson, Helgi Bergvinsson, Ástþór Markússon Fagurhól, vantarnafn, Einar Torfason Áshól, Sigurjón Vaklason Sanclgerði, Páll Eyclal Jónsson Garðstöðum, Magnús Grímsson Felli og Jón Björnsson Bólstaðarhlíð.

Júlíus Sigurösson flutti tillögu um að Slysa-varnafélagið Eykindill fengi að selja kaffi á sjómannadaginn. 8. júní 1952 er minnis-merki drukknaðra og hrapaðra manna vígt og blómsveigur lagður að fótstalli. Þá var keppt um skjöld sem Eykindilskonur gáfu til verðlauna í stakkasundi og var þetta í annað skiptið sem keppt var um hann og var Ingvar Gunnlaugsson sigurvegari í bæði skiptin. 22. september 1952 cr bátaskvliö að fullu reist og afhenti byggingarncfndin það for-manni sem tók við lyklunum. Rætt var um að innrétta fundarsal á lofti bátaskýlis. Engar ákvarðanir teknar. 1954 Formaður: Jóhann Pálsson. Ritari: Sigurfinnur Einarsson. Gjaldkeri: Þorsteinn Þorstcinsson. Samþykkt var að veita Vestmannacyjafé-


1953 Róðrarkcppni fer í fyrsta skipti fram á laugardegi.


Knattspvrnuleikur á sjórnannaclaginn 1944


Talið frá vinstri: Benóný Friðriksson frá Gröf Gunnar Stefánsson Gerði, Ólafur Sigurðsson Skald, Etnil Magnússon Sjónarhóli, Atiton Grítnsson Felli, Kristinn Sigurðsson Skjaldbreið, Einar Olafsson Búðarfelli, Bernódas Porkelsson Sandprýði, Ragnar Helgason Britnhólabraut 11, Markús Jónsson Arrnóti og Guðjón Kristinsson Hólmgarði.

laginu Heimaklctti 5.000 kr. til myndatöku og orgelsjóð elliheimilisins 2.500 kr. Einnig var samþykkt að verða með í kaup-um magnarakerfi og greiða til þess kr. 2.500. Dagskrá sjómannadagsins 1954. Laugardagur. Friðarhöfn kl. 4. Byrjað með stakkasundi, tveir þátttakendur. Kappróður. Sex skips-hafnir. Þá sýndu nokkrir menn meðferð og æfingu á gúmmíbjörgunarbát. Sunnudagur. Hátíðin sett kl. I. Ársæll Sveinsson. Ald-raðir sjómenn heiðraðir. Lúðrasveit Vest-mannaeyja lék. Skrúðganga að minnismerki. Ræða: Steingrímur Benediktsson formaður Slysavarnafélagsins Eykindils. Sigríður í Höfn Iagði blómsveig á fótstalli minnis-merkisins. Guðþjónusta. Kl. 15.30 á Stakkagerðistúni: 1. Ræða: Karl Guðjónsson. 2. Handbolti karla: Austurbærog Vestur- bær. 3. Reiptog karla og kvenna. 4. Boðhlaup Austur- og Vesturbær. Kl. 18. Kvikmynd í Samkomuhúsinu. Kl. 20. Kvöldskemmtun:

1. Sett Stefán Árnason. 2. Gestur Þorgrímsson skemmtir með söng og fleiru. 3. Vigfús Ólafsson með léttmeti. 4. Gunnar Sigurmundsson las ferðasögu. 5. Stúlkur sungu með gítarundirleik. 6. 20 ára gömul kvikmynd af atvinnulífinu í Eyjum. 7. Páll Þorbjörnsson afhenti Benoní Frið-


Fyrsti sjórnannadcigurinn

rikssyni aflakóngi Vestmannaeyja 1954 farandgrip (Víkingaskip) gefið af af-komendum Hannesar lóös frá Miðhúsum. Skal gripur þessi afhendast á hverjum sjómannadegi aflahæsta farmanni í Vest-mannaeyjum. 8. Sigurður Finnsson afhenti verðlaun dag- sins. Kl. 10.30 var dansað í tveimur húsum. Veður var mjög gott allan daginn og fór hátíðarhaldið vel fram. Hér er dagskrá þessi tekin upp til að sýna þróunina þau 10 ár sem sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur í Vestmanna-eyjum. 1955 Formaður: Sigurgeir Ólafsson. Gjaldkeri: Ármann Böðvarsson. Ritari: Sigurfinnur Einarsson. Kristinn Sigurðsson kemur fyrst við sögu sjómannadagsins og er kosin í blaðnefnd. 1956 Formaður: Sigurgeir Ólafsson. Gjaldkeri: Sigurður Ögmundsson. Ritari: Grétar Skaftason. Pá var ákveðið að prenta blaðið { Reykja-vík. 1957 Formaður Sigurgeir Ólafsson. GjaIdkeri:Svcinn Valdimarsson. Ritari: Armann Höskuldsson. PÁ var vegalengd í róðri stytt úr 400 í 300 metra og hefur það haldist síðan. 1958 Formaður: Karl Guðmundsson. Gjaldkeri: Svcinn Valdimarsson. Ritari: Armann Höskuldsson. 1959 Formaður: Júlíus Ingibcrgsson. Gjaldkeri Sveinn Tómasson.


Fjölmennt á skemmtun sjómannadugsráðs 1971

Ritari: Þórður Stefánsson. Páll Scheving bar fram þá tillögu að fenginn yrði fastur maður sem aðalgjaldkeri og greiddi Iaun fyrir. Júlíus Ingibergsson og Sigurður Olafsson báru fram viðbótartillögu við tillögu Páls um að sami maður hefði umsjá með áhöldum og eigum félagsins og tæki laun fyrir. Stjórn var veitt heimild til að ráða mann til starfsins. Var Kristinn Sigurðs-son ráðinn í starfið og gegnir því ennþá. 1960 Formaður: Bjarni Sighvatsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Agnar Angantýsson. Ritari: Bjarni Ólafsson. Júlíus Ingibergsson gerði uppástungu til fundarins að Kristinn Sigurðsson fengi 6.000.00 kr í þóknun fyrir féhirðisstarfið og umsjón með áhöldum og eigum sjómanna-dagsráðs. Samþykkt samhljóða. Fundur var haldinn í sjómannadagsráði Vestmannaeyja 5. júlí 1960. Auk sjómanna-dagsráðs voru mættir menn úr stjórnum og trúnaðarráðum félaganna Verðandi, Vél-stjórafélagi Vestmannaeyja og Jötni. Fund-arefni var ósk Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna um að happdrættið styrkti dvalarheimilisbyggingu í Vestmannaeyjum. Kristinn Sigurðsson hafði framsögu í málinu. Síðan hófust almennar umræður um málið. Fundurinn samþykkti að kjósa þrjá menn til þess að athuga um að tekjur af happdrætti DAS, ef happdrættisleyfi yrði framlengt, gegni til byggingar dvalarheimilis í Vest-mannaeyjum enda gengju þá einnig tekjur og eignir sjómannadagsins í Vestmannaeyjum til þeirrar. byggingar. Samþykkt einróma. Kosin var þriggja manna nefnd í málið, einn frá hverju félagi. Einróma kosningu hlutu: Fyrir Verðandi: Kristinn Sigurðsson. Fyrir Vélstjóra: Páll Seheving. Fyrir Jötun: Sigurfinnur Einarsson. Rætt var um heppilega lóð fyrir væntanlegt

heimili. Rætt var um Ióð á Skansi og við Strembu. Engin ákvörðun tekin. 11. oktober 1960 var fundur haldinn að Hótel H.B. Tilefni var bréf frá Happdrætti DAS. Efni bréfsins var að Happdrættið styrkti fyrirhugaða byggingu dvalarheimilis aldraðra sjómanna í Vestmannaeyjum. Nefndinni, sem var kosin á síðasta fundi, var falin framkvæmd málsins. 1961 A aðalfundi þetta ár var enn rætt um dvalarheimilis-málið og sömu mönnum falin áframhaldandi framkvæmd. Stjórn sjómannadagsráðs: Formaður: Grétar Skaftason. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Guðni Grímsson. Ritari: Jóhann Hannesson. Til gamans má geta þess að þetta ár heldur Einar J. Gíslason ræðu við minnismerkiö og hefur ætíð gert síðan, meira að segja gosárið 1973. 1962 Formaður: Ragnar Eyjólfsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Hjörleifur Hallgrímsson. Ritari: Jóhann Fr. Hannesson.

1963 Formaður: Sigurður Elíasson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Hjörleifur Hallgrímsson. Ritari: Jóhann Fr. Hannesson. Því miður er ekkert skráð um árið 1964 og því ekki vitað um stjórn, en formaður var Ágúst Bergsson. 1965 Formaður: Jónatan Aðalsteinsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Agúst Hreggviðsson. Ritari: Brynjar Fransson. 1966 Formaður: Hörður Jónsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Steingrímur Sigurðsson. Ritari: Brynjar Fransson. Armann Eyjólfsson tók að sér að sjá um útgáfu Sjómannadagsblaðsins. Þetta ár er fyrst sýnd björgun með þyrlu-vængju. 1967 Formaður: Hjörtur Hermannsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Steingrímur Sigurðsson. Ritari: Brynjar Fransson. 1968 Formaður: Steingrímur Sigurðsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Sveinn Sigurðsson. Ritari: Brynjar Fransson. Fundur var haldinn 9. júní 1968. Tilefni hans var bréf frá bæjarstjórn Vestmannaeyja þar sem bæjarsjóður fer fram á að fá keypt bátaskýli sjómannadagsráðs. Kosnir voru tveir menn til að ræða við bæjarstjórn, þeir Helgi Bergvinsson og Einar Guðmundsson. 1969 Formaður: Erling Péturssön. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Hreinn Pálsson. Ritari: Garðar Sigurðsson.

1970-1971 Formaður: Þórður Rafn Sigurðsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Sigmar Sveinbjörnsson. Ritari: Garðar Sigurðsson. 1972 Formaður: Jóhannes Kristinsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Gjaldkeri: Sigmar Þ. Sveinbjörnsson. Ritari: Logi S. Jónsson. Þetta ár voru mar«ir fundir og mikið rætt um byggingu dvalarheimilisins aldraðra og stefnt að því að það yrði í tengslum við nýja sjúkrahúsið, svo nefnd norður-álma. Fyrir lá loforð frá Pétri Sigurðssyni um að framlag til byggingarinnar fengist frá happdrætti Dval-arheimilis aldraðra þar sem 40% af tekjum þess ætti að fara út á land samkvæmt leyfi fyrir happdrættið. En hér fór sem oft áður að gefin voru fögur loforð á meðan að verið var að fá endurnýjun á leyfi fyrir happdrættið, en þegar leyfið var fengið gufuðu loforðin upp, og svo mikið er víst að aldrei hefur króna

komið til Vestmannaeyja frá því. Kosin var húsbyggingarnefnd. Hana skipuðu Jóhannes Kristinsson, Sigmar Þ. Sveinbjörnsson og Högni Magnússon. Fráleitt er að saka þá á nokkurn hátt um að þeir hafi ekki unnið mikið og vel í þessu máli þótt árangur hafi ekki orðið meiri. 1973 Þetta var erfitt ár fyrir sjómannadagsráð eins og aðra Vestmannaeyinga. Pá hélt Einar J. Gíslason ræðu og minntist látinna. Tvær stúlkur úr Reykjavík sungu og lagður var blómsveigur að fótstalli minnisvarðans, það gerðu Jóhannes Kristinsson og Kristinn Sig-urðsson. Flestir þeir sem staddir voru í Eyj-um, mættu við þessa athöfn. Þá var flogið til Reykjavíkur og þar haldið hóf um kvöldið að Hótel Borg og þótti það takast vel. Sama stjórn og áður sá um daginn. 1974 Áfram sat sama stjórn og átti nú að halda daginn hátíðlegan á hefðbundinn hátt í Vest-mannaeyjum 8. og 9. júní 1974. Föstudaginn 7. júní kl. 9 steig Ólafur V. Noregskonungur á land í Vestmannaeyjum og kom það í hlut sjómannadagsráðs að sjá um skreytingu við höfnina með íslenskum og norskum fánum. Allur floti Vestmannaeyja sigldi á móts við konungsskipið undir stjórn Guðjóns Ár-manns Eyjólfssonar. Þótti þessi sigling til mikillar fyrirmyndar og einnig er konungs-skipin voru kvödd um hádegisbilið. Eftirfarandi skeyti fóru á milli (þýdd á íslensku): Konungsskipið Norge. Til hans hátignar Olafs V. Noregskonungs. Sjómenn á fiskiskipaflota Vestmannaeyja senda hans hátign Ólafi V. Noregskonungi hjartanlegar kveðjur með ósk um góða ferð. Við þökkum alla þá hjálp sem yðar hátign og norska þjóðin hefur veitt okkur. Við kveðj-um með því að segja Noregi allt (einkunnar-orð konunga). Sjómenn í Vestmannaeyjum. Frá konungsskipinu Norge: Til sjómanna í Vestmannaeyjum. Ég þakka sjómönnum í Vestmannaeyjum fyrir vinsamlegar kveðjur og fyrir fylgdina við komu mína og brottför. Ég óska yður öllum alls hins besta í framtíðinni. Ólafur konungur. Var þetta góð byrjun á sjómannadagshá-tíöarhöldunum sem fóru síðan fram á hefð-bundinn hátt. Pá var ákveðið með gjafabréfi viö víxlu hins nýja Elliheimilisins, Hraun-búða, 22. september 1974 að gefa 700 þús. kr. sem skyldu ganga í að fullgera lóð heimrli-sins,. 1975 Loks var kosin ný stjórn Og skipuðu hana. Formaður: Andrés Þórarinsson Gjaldkeri: Pétur Sveinsson. Ritari: Hreinn Gunnarsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. A fundi þetta ár var kosin nefnd sem skyldi heita húsnæðismálanefnd og voru kosnir í hana þeir Jóhannes Kristinsson og Sigurður Gunnarsson. 17. október 1975 kynnti Jóhannes Krist-insson þá hugmynd að láta steypa kapp-róðrabáta úr plasti. Var hann með tilboð frá trefjaplasti h.f. á Blöndósi og skyldi mótið kosta ca. kr. 600 þúsund og hver bátur kr. 400 þúsund. Var ákveðið að fara út í þessi kaup og var Jóhannesi falin framkvæmd málsins og að gera samninga þar um í sam-ráði við stjórn. 19. mars 1976 var enn rætt um kappróðr-arbáta sem þegar var byrjað á og rætt um fjármögnun og var ákveðið að 400 þúsund úr hússjóði og 600 þúsund úr sjóðum sjómann-adagsráðs skyldu ganga í þetta. 1977 A aðalfundi kom fram að búið væri að greiða vegna bátakaupanna kr. 2.404.080 kr., sem skiptast þannig að greitt til Trefja-plasts var 1.650.000 kr. og annað greitt til ýmissa aðila í Vestmannaeyjum. Er í þessu fótstig og árar sem eiga að fara í báta út á landi.Þegar eru seldir 10 bátar sem eiga að fara á fimm staði og samkvæmt samningi eigum við að fá 200.000 kr af bát og skaffa fótstig og árar. Heildarkostnaður við báta og mótið eru kr. 2.910.000,00. Stjórnina skipa: Formaður Kristján Óskarsson. Gjaldkeri: Olafur Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritari: Sigurgeir Jónsson. 1978 Stjórn: Formaður: Ágúst Óskarsson.

1976 Aðalfundur var haldinn 1. maí. í stjórn næsta starfsár voru valdir: Formaður: Jóhannes Kristinsson. Gjaldkeri Pétur Sveinsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritari: Sigurgeir Jónsson. Talið er að nýju kappróðrarbátarnir verði til fyrir næsta sjómannadag og kosti 2,5 mill-jónir bátarnir þrír og mótið. A fundi 29. maí kom fram að sjómanna-dagurinn skyldi haldinn 13. júní samkvæmt ákvörðun þeirra í Reykjavík. Kappróðrar-bátarnir eru komnir. Steingrímur Arnar var ritstjóri Sjómannadagsblaðsins. 8. janúar 1977 kemur fram á fundi að búið sé að stofna húsfélagið Bása og gera kaupsamning við eigendur Halkíonshúss og er kaupverðið 12 milljónir króna. Þeir sem stofnuðu húsfélagið Bása voru: Björgunarfélag Vestmannaeyja 25%. Sjómannadagsráð 25%. Skipstjórafélagið Verðandi 20%. Vélstjórafélag Vestmannaeyja 20%. Slysavarnadeildin Eykyndill 10%.

Gjaldkeri: Ólafur Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritari: Pétur Steingrímsson. 7. desember 1978 kom Jóhannes Kristins-son fram með þá hugmynd að endurprenta fáein eintök af fyrstu Sjómannadagsblöðun-um og binda síðan öll blöðin inn í bækur. Var honum veitt heimild til að sjá um prentun og bókband en síðan yrði teknar ákvarðanir um dreifingu. Þá kom Kristinn Sigurðsson fram með tillögu um að sjómannadagsráð gæfi til minnisvarðans um björgunarskipið Þór. Sam þykkt var að gefa kr. 50.000,00. 1979 Stjórn: Formaður: Björgvin Ármannsson. Gjaldkeri: Ólafur Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritari: Sigurður G. Þórarinsson. Sjómannadagurinn var 9. og 10. júní og hófst með því að afhjúpað var Minnismerki Pórs og var það Sigríður Björnsdóttir sem það gerði. Að öðru leyti fóru hátíðarhöldin fram á hefðbundinn hátt. 1980 Aðalfundur í Sjómannadagsráði 1. maí. í stjórn voru kosnir eftirtaldir menn: Formaður: Ólafur Guðjónsson. Gjaldkeri Ólafur Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritar: Sigurður Þórarinsson. 1981 Um sjómannadaginn 1981 er lítið skráð. Líklega er stjórnin þannig skipuð: Formaður: LýðurÆgisson. Gjaldkeri: Gústaf Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritari: Sigurður Þórarinsson.


Talið frá vinstri: Stebbi á Sléttabóli, Guðmundur í Heiðardal, Guðjón á Lógbergi og Guðmundur á Háeyri.

Sjómannadagsráð Vestmannaeyja 1972-1974. Talið frá vinstri, aftasta röð: Grímur Magnús-son, Logi Snœdal Jónsson, Pétur Valdimarsson, Högni Magnússon. Miðröð frá vinstri: Andrés Þórarinsson, Matthías Guðjónsson, Sigþór Magnússon, Pétur Sveinsson, Þórhallur Þórarinsson, Olafur Már Sigurmundsson. Fremsta röð f.v.: Snorri V. Olafsson, Þór Vil-hjálmsson, Kristinn Sigurðsson, Ingi Steinn Olafsson, Jóhannes Kristinsson, Sigmar Þór Sveinbjömsson, Hallgrímur Garðarsson.

Sjómannadagsráð Vestmannaeyja 1983. Talið frá vinstri: Hrafn Oddsson, Benóný Færseth, Sigmundur Cesarsson, Ástþór Jónsson, Jens Oddsteinn Pálsson, Guðmundur Sveinbjörnsson, Kristinn Sigurðsson, Stein Ingólf Hinriksson (Brói), Indriði Rósenbergsson, Kristján Guð-mundsson, Sveinn A. Valgeirsson og Kjartan Jónsson.

1982 í stjórn voru þessir menn kosnir: Formaður: Haraldur Benediktsson. Gjaldkeri: Gústaf Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ritari: Sigurður Þórarinsson. Þar sem Halli á Klakk kemur til með að vera að mestu leyti úti á sjó fram að sjó-mannadegi samþykkti Lýður Ægisson fráfar-andi formaður að vera eins konar fram-kvæmdastjóri ráðsins í fjarveru hans. Fram kom að Sjómannadagsblaðið er vel á veg komið og ritstýra þeir blaðinu Sigmar Þór Sveinbjörnsson og Sigurgeir Ólafsson. Áttu þessi nöfn að tryggja gott og skemmti-legt blað. 1983 Um árið 1983 er ekkert skráð í fundar-gerðarbók og verður því að styðjast við minnið. Formaður: Guðmundur Sveinbjörnsson, Gjaldkeri: Gústaf Guðmundsson. Féhirðir: Kristinn Sigurðsson. Ár þetta gekk vel fjárhagslega. Gefið var til sólskála við Elliheimilið kr. 20.000. Einn¬ig var lagt á vaxtaaukareikning 100.000 kr. sem kemur sér vel þar sem nvbúið er að undirskrifa samning um að fullklára húsið Bása. Var sá samningur rúmlega hálf önnur milljón og er hlutur sjómannadagsráðs 25%. Þegar er búið að greiða kr. 128.000 og afganginn á að fá að láni hjá Útvegsbanka Islands í Vestmannaeyjum. Sjómannadagsblaðinu ritstýra Sigmar Þór Sveinbjörnsson og Ágúst Bergsson og lofar það góðu blaði. Að endingu þetta. Hér hefur verið stiklað á nokkrum punktum í störfum sjómanna-dagsráðs, en engin tæmandi saga þess skráð. Eins og menn, sem lesið hafa þessa punkta, sjá þá, hafa margir merkir menn byggðarlag-sins lagt hönd á plóginn til að koma mörgum merkum málum í höfn í þau 40 ár sem sjómannadagsráð hefur starfað. Eiga þeir þakkir skildar fyrir störf sín. Þau hafa ekki ætíð verið þökkuð sem skyldi því að þessir menn hafa lagt fram mikla vinnu byggðarlag-inu til velfarnaðar. Með kveðju Kristinn Sigurðsson.