„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1983/ Hann sat einn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 1: Lína 1:
Hann sat einn

Hann sat einn

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-31 at 11.20.16.png|300px|thumb]]
Hann sat einn hinn aldni maður,

Hann sat einn hinn aldni maður,

ævilúinn hárin grá,

ævilúinn hárin grá,

Núverandi breyting frá og með 31. júlí 2017 kl. 11:28

Hann sat einn

Hann sat einn hinn aldni maður,
ævilúinn hárin grá,
flestum þótti hann fátalaður,
fleira hugsaði karlinn sá.

Brún var hvöss og bar þess merki,
þó báturinn væri orðinn hró,
að karlinn hafði að vilja og verki,
verið fær í allan sjó.

Hann greiddi bæði kóngi og klerki,
kvittur og skuldar engum neitt,
en höndin kreppt er heiðursmerki,
hún er starfsins rúnum skreytt.

Þó hann fæddi konu og krakka,
og kæmi þeim öllum vel til manns,
fannst honum varla þörf að þakka,
þetta voru forlög hans.

Þekkti hann strit með orfi og ári,
öllu hefur tæknin breytt.
Amboð horfin, enginn skári,
ekkert róðraleiði þreytt.

Litið get ég langt til baka,
lífið gaf mér seiglu og þrótt.
Mér fannst betra á skútu að skaka,
en skrölta á trolli dag og nótt.

Oft var rætt um aflahlutinn,
það urðu sjaldan mikil söfn.
Hár þó félli skafl við skutinn,
skilaði fleyið mér í höfn.

Nú fer að verða fátt til vona,
því finnst mér orðin hvíldin kær.
Í minningunni er myndarkona,
í mínum huga hlý og skær.

Ég kann því vel að krakkagreyin,
kæmust talsvert betur af.
Ég bjargaðist alltaf einhvern veginn,
í ellinni fékk ég göngustaf.

Sigurgeir Kristjánsson