Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1982/Skipaviðgerðir h.f.

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. mars 2016 kl. 15:45 eftir StefánBjörn (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. mars 2016 kl. 15:45 eftir StefánBjörn (spjall | framlög) (Ný síða: <center><big><big>'''Skipaviðgerðir h/f'''</big></big></center><br> Fyrirtækið Skipaviðgerðir stendur nú á tímamótum varðandi aukna þjónustu við fiskiskipaflotann. ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Skipaviðgerðir h/f


Fyrirtækið Skipaviðgerðir stendur nú á tímamótum varðandi aukna þjónustu við fiskiskipaflotann. Hefur það nú tekið í notkun nýtt viðbótarhúsnæði 400 ferm. í nýju húsi sem fyrirtækið reisti 1977. En húsið hefur verið leigt þar til nú nýlega.
Nú hafa Skipaviðgerðir ráðist í að kaupa mót og búnað til að framleiða báta úr trefjaplasti. Er þar um að ræða 3 gerðir báta.
Nú nýlega var fyrsti plastbáturinn afhentur að viðstöddu fjölmenni.