Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975/Vélstjóranámskeið í Vestmannaeyjum árið 1937

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2015 kl. 10:51 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2015 kl. 10:51 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big>Velstjóranámskeið í Vestmannaeyjum árið 1937</big></big> Bókleg kennsla á námskeiðinu fór fram uppi á lofti í húsinu Bifröst við Bárugötu. [[Egill Símona...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Velstjóranámskeið í Vestmannaeyjum árið 1937

Bókleg kennsla á námskeiðinu fór fram uppi á lofti í húsinu Bifröst við Bárugötu. Egill Símonarson frá Miðey, nú endurskoðandi í Reykjavík, kenndi íslenzku, Friðrik Lesson kenndi sund, en bókleg og verkleg vélfræðikennsla var á höndum Guðmundar.

Verkleg kennsla var í smiðju Einars Magnússonar (föður Markúsar veðurfræðings). En smiðja Einars var í sama húsi og verzlunin Framtíðin var síðast í, norðan við gömlu Rafstöðina. Öll fóru hús þessi undir hraun.

Kennt var á June Munktell glóðarhausavélar, tvígengisvélar, tvær 35 hestafla vélar og eina 50 hestafla vél. Einnig var kennt á 25-30 hestafla Tuxhamvél, sem einnig var tvígengisvél. Var þetta með því fyrsta, sem tvígengisvélar voru hér í flotanum, því að áður voru aðallega fjórgengis Dan-vélar í bátum. Námskeiðið stóð í um það bil þrjá mánuði; frá 1. október til jóla, og var eins og önnur námskeið í vélgæslu á þessum árum á vegum Fiskifélags Íslands.

Prófdómarar voru Ólafur heitinn Ólafsson í Magna og Arthur Aanes. Veitti prófið 50 hestafla réttindi, sem síðar hækkuðu upp.