„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1970/ Minni sjómanna 1970“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Minni sjómanna 1970.png|300px|thumb]]
Minni sjómanna 1970

''Hafa menn í hundruð ára''

''höfin siglt í bjargarleit.''

''Oft til fjarra landa lágu''

''leiðin glæst með fyrirheit''

''um nægtabrunna gulls og gæfu,''

''glatt var þar í drengjasveit.''

''Á þræði lék oft líf á bárum,''

''löðurtrylltum, þungum sjó.''

''Skeiðin gegnum skaflinn renndi,''

''skutur gneypur löðrið smó,''

''drengir, þó að dimmdi í álinn,''

''duga vildu, það var nóg.''

''Gerðist margur horskur halur''

''höfuðprýði í þessum leik.''

''Hvort skútan væri skelin þunna,''

''skeinusár með borðin veik''

''eða stórskip, stafna milli''

''stáli girt, er ekki sveik,''

''aldrei spurðist hetjan hafi''

''hugsað um né verið smeyk.''

''Mörg hafa vötn til sjávar sigið''

''síðan lagt á hafið var''

''í fyrsta sinn við sjó að etja,''

''sviptast á við bylgjurnar.''

''Enn við sömu breka og boða''

''brotnar tigið íslenzkt far,''

''og orkumiklir Íslendingar''

''óbættir oft liggja þar.''

''Hafið ekki mæla málum''

''mátti neinn, ef út af bar.''

''Hröktu sjóir, hrikti í byrðing.''

''hnútum skutu öldurnar.''

''Við landið oft er lífsvon döpur,''

''lítil geta björgunar.''

[[Mynd:Minni sjómanna 1970.png|300px|center|thumb]]

''Þetta ei neinum ykkar aftrar''

''áfram leggja í hætturnar.''

''En ef þið ekki ættuð viljann''

''inni syltu landsbúar,''

''sem kunna betur kyntum húsum''

''en kröppum dans við hætturnar.''

''Ykkar skartar höndin heila''

''og hjartað innst við ræturnar,''

''er djarft þið berjizt brims við rostann''

''blóðið rennur skyldunnar.''

''Er með sigri heim svo haldið''

''og heilir sjáizt koma þar,''

''feginshugar fólk og tunga''

''fagnar drengjum allshugar,''

''en alla þá, sem týna tölu''

''tregar þjóð full lotningar,''

''skyggn á ykkar skyldudáðir,''

''er skrumlaust birtast alls staðar.''

''Hver þrekraun ykkar meitli mótar''

''manndóm, sál og hugarfar.''

[[Þorsteinn Jónsson (Laufási)|Þorsteinn L. Jónsson]].

{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}

Leiðsagnarval