Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1970/ Hafvilla

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2018 kl. 16:19 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2018 kl. 16:19 eftir Vpj1985 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hafvilla


FRÁSÖGN þessi er eftir Kristján Einarsson Brekastíg 21 hér í bæ. Hann var sjómaður um árabil, þar af formaður 14 til 15 vertíðir. Fæddur er Kristján 1906 og fluttist til Vestmannaeyja árið 1922; vinnur hann nú í Veiðarfæragerð Vestmannaeyja.

Kristján Einarsson.

VETRARVERTÍÐINA 1926 réðst ég á m/b Kára VE 123. Var Kári einn hinna minni báta, líklega 10 til 12 tonn. Voru eigendur bátsins Sigurður Þorsteinsson, Nýjabæ; [[Ólafur Eyjólfsson, Garðsstöðum og Kristján Jónsson, Heiðarbrún. Kona Kristjáns var Elín Oddsdóttir, og hjá þess-um ágætu hjónum var ég til heimilis. Nokkur barna þeirra voru á heimilinu, þar á meðal ólaf-ur, fyrrum bæjarstjóri; og var hann einn af skip-verjum Kára þessa vertíð. AUs vorum við 7 á bátnum, en ekki man ég nöfn allra. Vélstjórinn hét Þóroddur, kallaður Doddi, ætt-aður austan af Fjörðum. í Kára var Skandia-vél, en á henni var sá galli, að olíuverkið („regulatorinn"), var drifið með reim, borðareim, sem náði niður á sveifar-ás. Vegna þessa varð að gæta þess, að ekki væri sjór í bátnum að ráði, því að þá gat komið fyrir, að sjórinn skvettist á reimina, sem þá „snuðaði", en gangur vélarinnar varð mjög óreglulegur. Var þá settur mulinn harpis á reimina. Hef ég þá skýrt frá dyntum vélarinnar. Það var liðið á vetrarvertíð, að mig minnir kominn seinni hluti marz-mánaðar. Áttum við netin SSV af Einidrang. □ Nóttina áður en atburður sá gerðist, sem hér verður greint frá, dreymdi mig draum: Mér birt¬ust þrjár hálfgerðar tröllkonur, glottu þasr allar til mín og dustuðu pilsum sínum. Fannst mér þetta allt hálfmeinlegt, en ekki varð draumurinn lengri, því að ég vaknaði við, að bankað var í húsið, og var það kallmerki til sjóferðar. A leið á miðin minntist ég á drauminn við strákana, en þeir hentu aðeins gaman að, og fekk ég að heyra það allan tímann, sem við drógum netin. Mér varð víst svarafátt við rausi þeirra, og voru svo netin afgreidd á venjulegan hátt og síðan haldið af stað heim. Fórum við strákarnir fram í að fá okkur eitt-hvað í svanginn og spjölluðum um heimkomu, sem myndi verða um sjöleytið, og hvernig kvöld-inu skyldi varið. Var þetta ekkert nýtt, enda allt ungir strákar, og ekki vantaði f jörið. Margt fer þó öðru vísi en ætlað er, og svo fór í þetta sinn. Veður var austsuðaustan kaldi og lítilsháttar væta, en lélegt skyggni. Ekki var þó ástæða til að ætla annað en allt yrði í lagi, þó var draumurinn og kerlingarnar að þvælast í huga mér allan daginn. Eitthvað um hjálf sjö fór ég upp og taldi víst, að við værum rétt komnir heim. Fór ég afmr fyrir stýrishús og skyggndist um. Brá mér hálf-illa, er ekkert sást til lands. Kom nú Doddi til mín, og kom okkur saman um, að við ættum að vera á móts við Eiðið og hlyrum því að vera vilitir. Var nú klukkan orðin sjö, og hefðum við þá átt að vera komnir í höfn. Fór nú Doddi og talaði við „kallinn" og sagði honum álit okkar. Ekki vildi hann samþykkja það og við það sat. Var haldið óbreyttri stefnu. Var þetta ekki bein-Iínis þægileg tilfinning, og var Doddi farinn að óróast. Fann ég að hann sagði minna um ástand-ið en efni stóðu til, enda var hann orðvar og prúður maður. Hann var næstur formanninum að aldri eða um 25 ára og hafði því meiri þekk-ingu á því, sem var að gerast, en við strákarnir. Þegar um klukkutími var liðinn, frá því að Doddi ralaði við „kallinn", vindur hann sér inn í stýrishús, og heyrði ég allharðar samræður. Ekki var þó breytt um stefnu, og um hálftíma síðar sáum við, að mótaði fyrir fallandi sjó. Kall-aði Doddi þá allharkalega til karlsins að setja stýrið hart í stjór, því að brotsjór væri aftan við bátinn. Gerði hann það strax, og tókst svo lán-lega til að bátnum tókst að hálsa brotið, þegar það skall á okkur, en við það reis báturinn upp á endann, og rann þá sjór aftur í vélarrúmið og yfir reimina á olíuverkinu. Var þá ekki að sök-um að spyrja, að reimin snuðaði. Doddi snarað-ist niður, en kaLLaði til mín um leið að sækja harpis, en hann þiufti ég að mylja smátt, svo að hann kæmi að fullum notum. Varla var ég kom-inn niðiu í lúkar fyrr en strákarnir spmðu, hvað gengí á, en ég svaraði, að nú væri eín af tröll-kerlingunum komin. Flýtti ég mér sem mest ég márti, enda vissi ég, að mikið lá við. Með aðra hönd á olíudælunni serti Doddi harpisinn á reimina, og tók vélin þá strax við sér. Einhver þægindi fóru um mann, og fór ég nú aftur fyrir stýrishús. Eg horfði fram fyrir, sá ekkert, en fann, að vindur var kominn á stjór, eða á sama borð og vindur hafði verið aila leið-ina. Þetta þýddi auðvitað, að stefna var aftur til Iands, og fór sem elding um huga minn hvort slys yiði ekki umflúið. í sömu andrá kom Doddi til m;n. Við litum aftur og sáum þá annan brot-sjó; augnablik var þetta lamandi, en svo snarað-ist Doddi inn í stýrishús og þreif í stýrishjólið, sem ekki varð þokað, og hafði það ekki verið hreyft, síðan fyrra brotið lenti á okkur. Var nú ekki annað að gera en vona, að við yrðum komn-ir nógu langt til að mæta brotinu, svo að allt færi vel og vélin myndi standast átakið. Kom nú brotið æðandi, og vorum við nú verr staddir en í hið fyrra sinn. Ailt fór þó vel, og hélt vélin gangi sínum. Sjaldan er þó ein báran stök; vorum við rétt að losna úr þessu ólagi, er ég sá annað. Lét ég Dodda vita, því að hann var nú kyrr við srýrið. Var þetta brotið sýnilega stærst og erfiðast viðureignar. Vonuðiun við hið bezta, og var næstum óskiljanlegt hvernig blessaður bát-urinn brauzt í gegnum brotið, og þökk sé þeim, sem hlífði. Var nú haldið út frá þessum leiðinda stað, og taldi ég öllu lokið af þessu tagi, enda draumur-inn kominn fram. Við Doddi áliaim, að við vær-um staddir langt vestur með landi, töldum við vindstöðu hina sömu og áður og fannst því rétt-ast að hafa vind um eða rétt framan við bak-borðsvant. Talaði Doddi um þetta við „karlinn", sem nú hafði náð sér. Ekki var hann þessu að öllu samþykkur, en þó héldum við þessari stefnu áfram, unz við sáum Ijós langtum austar og dýpra. Reyndist þetta vera togari og ætluðum við að ná tali af hontun og fá stefnuna á Eyjar, en við munum hafa verið komnir um of í leið togar-ans, því að hann snarbeygði frá okkur, og var því úti þessi vonin. Eftir um það bil hálftíma eygðum við annað Ijós, en nú beint framundan. Dró fljótt saman. Þegar skipið var rétt komið að okkur, var allt uppljómað af sterku kastljósi, og vissum við þá, hvett skipið myndi vera; okk-ar kæri Þór, sem var að leita að okkur. Kom hann rétt til okkar og sagði okkur, að við værum 5 sjómílur norðvestur af Þrídröngiim. Keyrði Þór síðan með okkur um stund og kom ckkur á rétta stefnu og hélt svo sína leið vestur eftir. Við töldum nú öllu okkar stríði lokið, og slaknaði nú á taugum, en því meir fundum við til þreytu. Styttist nú óðum, og aldrei fór það svo, að við fyndum ekki blessaðar Eyjarnar. En þegar við etum komnir heim undit Eiði, þá stoppar vélin. Þetta var í fyrsm sem hálfgett kjaftshögg, en reyndist ekki annað en olíuleysi. Við áttum 25 lítra btúsa í afturlestinni með varaolíu, og. þegar bætt hafði vetið á tank-inn, komst vélin brátt í gang. Einhverjir voru á bryggjunni, þegar við kom-um að, þar á meðal Ólafur á Garðstöðum, og var okkut vel fagnað. Var þá klukkan langt í þrjú eftir miðnætti. Sennilega hefur mikil kompás-skekkja og ef til vill segultruflanir valdið haf-villu þessari. Fót hér betLir en á hotfðist, en merkilega vel kom dtaumLirinn um tröllkonurn-a: þrjár fram.

Kristján Einarsson