Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966/ Skip í Hrófunum um síðustu aldamót. Skýringar eftir Engilbert Gíslason málara

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2016 kl. 14:20 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2016 kl. 14:20 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: Skip í Hrófuiiuiii um síðustu aldamót Myndin er eftir málverki Engilberts Gísla-sonar málara, í eigu fyrirtækis Tómasar M. Guðjónssonar við Formannabraut. Myndin sýni...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Skip í Hrófuiiuiii um síðustu aldamót

Myndin er eftir málverki Engilberts Gísla-sonar málara, í eigu fyrirtækis Tómasar M. Guðjónssonar við Formannabraut. Myndin sýnir Eyjaskip í nausti eins og þau munu hafa verið um aldaraðir. Yzt til vinstri er hið fræga vertíðarskip, áttæringurinn Gideon í hrófi sínu. Áraskipin áttu hvert sitt hróf og voru þau skorðuð á milli steina eins og sjá má af mynd-inni, og með hlunnum, og má sjá einn bak við manninn. Band var fram af skipunum og var því bundið í steina eins og greinilega má sjá fram af sexæringnum Mýrdæling, sem er annað skipið frá vinstri. Mýrdælingur er þarna í hrófi Áróru. Formenn með Mýrdæling voru m. a. Þorsteinn Jónsson alþingismaður í Nýja-bæ og lengst Jón Ingimundarson í Mandal. Setning stórskipa í Hrófin var ákafleg erfið. Gideon var skorðaður upp við stóra klöpp eins og sjá má á myndinni, og var einkar erfitt hjá fremstu rnönnunum, þegar komið var að klöppinni. Engilbert Gíslason segir, að Þorsteinn í Laufási hafi eitt sinn sagt sér, að honum hafi ávallt verið það minnisstætt, þegar Jón faðir hans frá Hrauni sýndi honum blóðrisa bakið eftir setning á gamla Gideon. Oþarfi er að segja frekar frá Gideon, svo frægur var hann og er næsta undarlegt, að enginn skuli hafa látið bát heita eftir þessu happaskipi. Fræ.g-astur formaður á Gideon var Hannes lóðs, sem var með hann í 37 vertíðir, en 42 vertíðir reri hann á honum. Yfir Mýrdæling og manninn, sem niun vera Kopi í Görn, sést Nausthamarinn, og sést greinilega. að hann er grasi vaxinn að ofan.Vestan og sunnan við Nausthamarinn sést Miðbúðarbryggjan, trébryggja á búkkum og staurum, sem lá á ská út í Lækinn. Næst Mýrdæling er 4-róinn vorbátur (botn-inn bleikmálaður), sem Gísli Engilbertsson á Tanganum átti og hét hann Elínborg; um skeið var Eldeyjar-Hjalti forrnaður ineð bát-inn. Þá kemur næst við Elínborgu sexæringur-inrr Blrða, átti Gísli Stefánsson bátinn, en lengst var Ölafur Magnússon í Nýborg for-maður ineð Blíðu. Ljósan bát ber yfir Blíðu og Elínborgu, er það Lísebet, sem Jón Péturs-son í Þorlaugargerði var lengst formaður með. Nyrzt skipanna er Friður (svart skip); for-menn á Frið voru lengst Lárus Jónsson hrepp-stjóri á Búastöðum, og Gísli sonur hans, sem bjó í Stakkagerði. Yfir Frið ber Fúlugarðirm, sem var norð-austarr Fúlu, og var hanrr nokkur vörn í sjó-gangi. (Skýringar við myndina eru ejlir höjund-inn, Engilbert Gíslason málara).