Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966/ Fiskikóngur Vestmannaeyja 1966

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2016 kl. 15:05 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2016 kl. 15:05 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><center>Fiskikóngur Vestmannaeyja 1966</center></big></big><br> Óskar Matthíasson, skipstjóri á Leó VE 400, hlaut heiðurstitilinn „Fiskikóngur...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fiskikóngur Vestmannaeyja 1966


Óskar Matthíasson, skipstjóri á Leó VE 400, hlaut heiðurstitilinn „Fiskikóngur Vestmannaeyja 1966“.
Þetta er annað árið í röð sem Óskar Matthíasson er aflakóngur á vetrarvertíð og eigum við yfirlitsgóða grein um hann í Sjómannadagsblaðinu í fyrra.
Óskar er maður á bezta aldri, aðeins 45 ára gamall, fæddur í Vestmannaeyjum 22. marz 1921 og kominn af þekktum sjósóknurum í ættir fram, bæði hér í Vestmannaeyjum og á Stokkseyri og Eyrarbakka.