Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966/ Þróun skipa í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2016 kl. 13:51 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2016 kl. 13:51 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><center>Þróun skipa í Vestmannaeyjum</center></big></big><br> Á árunum 1950—1960 fékk Lifrarsamlag Vestmannaeyja völundinn [[Ólafur Ástgeirsson|Ólaf Ástgei...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þróun skipa í Vestmannaeyjum


Á árunum 1950—1960 fékk Lifrarsamlag Vestmannaeyja völundinn Ólaf Ástgeirsson frá Litlabæ til þess að smíða líkön af áraskipum og líkan, sem sýndi gerð fyrstu mótorbátanna.
Bátar þessir eru sérstök listasmíði og var hvert borð í þeim smíðað fyrir sig og skipið síðan byrt eins og um skip í eðlilegri stærð væri að ræða, síðan var hver nagli hnoðaður.
Lifrarsamlag Vestmannaeyja og forstjóri þess, Jónas Jónsson, eiga sérstakar þakkir skilið fyrir að hafa með þessu framtaki bjargað þessum stórmerku sögulegu verðmætum fyrir byggðarlagið og atvinnuþróun þess. Væri óskandi, að þessu starfi verði haldið áfram og fleiri fyrirtæki sýndu atvinnusögu Eyjanna þann áhuga, sem Lifrarsamlagið hefur gert.