„Sigurlín Jónsdóttir (Ólafshúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Sigurlín Jónsdóttir (Ólafshúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. apríl 2014 kl. 12:34

Sigurlína Jónsdóttir frá Ólafshúsum, húsfreyja í Lambhaga, fæddist 17. júlí 1896 og lést 21. júní 1923.
Foreldrar hennar voru Jón Bergur Jónsson „eldri“, f. 10. ágúst 1864 að Hörgslandi á Síðu, d. 16. apríl 1952, og fyrri kona hans Elín Sigurðardóttir, f. 5. desember 1865 í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum, d. 26. febrúar 1906.

Sigurlína var með föður sínum 1910, Jórunni Erlendsdóttur stjúpmóður sinni og systkinum, öðrum en Guðfinnu.
Við manntal 1920 bjó hún húsfreyja í Lambhaga með Ólafi.

Maður hennar var Ólafur Ingileifsson formaður, síðar bóndi í Heiðarbæ, f. 9. júní 1891 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 14. febrúar 1968.
Sigurlína var önnur kona hans.
Þau voru barnlaus.


Heimildir