Sigurjón Ingvarsson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 14:21 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 14:21 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Ingvarsson var fæddur 20. desember 1895 og lést 29. mars 1986, 90 ára gamall. Hann var fæddur og uppalinn að Klömbrum undir Austur-Eyjafjöllum. Hann fór í fyrsta sinn á sjó tólf ára gamall og vann ýmis sjóstörf á söndunum undir Eyjafjöllum næstu árin. Árið 1909 kemur hann fyrst á vertíð í Eyjum og er allar næstu vertíðir, undanskildar eru tvær þar sem hann var í Grindavík, árin 1916 og og 1917. Fyrst verður hann formaður árið 1923 þegar hann kaupir hlut í Þór. Svo er hann formaður á Sæbjörgu, Soffí, Gísla Johnseni og Ísleifi.

Sigurjón var brautryðjandi í samgöngumálum Vestmannaeyinga. Árið 1940 hóf hann Stokkseyrarferðir með Jóni á Látrum. Fengu þeir bátinn Skíðblaðni leigðan hjá Helga Benediktssyni. Fóru þeir eina til tvær ferðir í viku til Stokkseyrar með farþega og vörur. Fargjaldið var 4 krónur. Næsta sumar höfðu þeir bátinn Herstein á leigu. Þriðja sumarið höfðu þeir bátinn Gísla Johnsen á leigu og keyptu hann sumarið eftir. Þeir höfðu góðan aðbúnað fyrir farþega, t.a.m. settu þeir 44 kojur í lestina. Alls voru þeir félagar í 14 ár með Stokkseyrarferðirnar og fluttu í þeim 730 ferðum sem þeir fóru 23.000 farþega.