Sigurjón Þorvaldur Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 11:32 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2006 kl. 11:32 eftir Margret (spjall | framlög) (bæti við)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Þorvaldur Árnason var prestur í Vestmannaeyjum á árunum 1924 til 1944. Hann var fæddur 3. mars 1897 á Sauðárkróki, sonur Árna prófasts að Görðum á Álftanesi og konu hans Líneyjar Sigurjónsdóttur óðalsbónda Jóhannessonar á Laxamýri.

Sigurjón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1917. Cand. theol. frá Háskóla Íslands 1921. Var við framhaldsnám í trúarheimspeki í Kaupmannahöfn veturinn 1921 til 1922. Fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli árið 1924 eftir fráfall sóknarprestsins þar séra Oddgeirs Þórðarsonar Gudmundsen og Hallgrímsprestakalli í Reykjavík 1944. Séra Sigurjón var lengi formaður barnaverndarnefndar Vestmannaeyja og starfaði mikið að málefnum K.F.U.M. og K. í Vestmannaeyjum. Kona hans var Þórunn Eyjólfsdóttir Kolbeins, prests að Staðarbakka, og áttu þau sjö börn. Þau bjuggu að Ofanleiti.

Sigurjón efldi kristna hugsun á meðal Eyjaskeggja og var í hvívetna áhrifaríkur aðili þar sem hann lagði hönd á plóginn.

Séra Sigurjón sat í skólanefnd flest eða öll árin sem hann var sóknarprestur í Eyjum. Auk þess gerðist hann forgöngumaður kristilegs félagsskapar í bænum til eflingar kirkju og kristindómi.


Heimildir

  • Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. Maí 1974.






Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.