Sigurður Sigurðsson (lyfsali)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 14:14 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 14:14 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Sigurðsson lyfsali og skáld fæddist í Kaupmannahöfn 15. september 1879. Móðir hans var dönsk en faðir hann var við nám í Danmörku.

Sigurður fór til Íslands á vegum föður síns sem drukknaði þegar hann var fimm ára gamall. Eftir það ólst Sigurður upp hjá Birni M. Ólsen rektor Lærða skólans. Þar lærði Sigurður en hætti námi í 6. bekk. Sigurður lagði síðar stund á lyfjafræði bæði á Íslandi og erlendis.

Sigurður var lyfsali í Vestmannaeyjum frá 1913-1931 en fluttist þá til Reykjavíkur og bjó þar til dauðadags. Hann var fyrsti lyfsali í Vestmannaeyjum og bjó hann að Arnarholti við Vestmannabraut. Hann nefndi húsið Arnarholt en áður hét það Stakkahlíð. Sigurður var einn af stólpum Björgunarfélags Vestmannaeyja fyrstu ár þess. Félagið var stofnað árið 1918 og tók hann virkan þátt í starfi þess frá byrjun. Það var hann sem fór og keypti björgunarskip fyrir hönd félagsins.

Ljóð sín gaf Sigurður fyrst út í bók sem hét Tvístirnið. Eftir það hafa komið fjórar útgáfur af ljóðum hans.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. I. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1982.
  • Sigurborg Hilmarsdóttir. Skáldatal. 1991.