„Sigurður Sigurðarson (Vatnsdal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 250px|thumb|''Jóhanna Friðriksdóttir og Sigurður. '''Sigurður Sigurðarson''' frá Vatnsdal, skipasmíða- og húsas...)
 
m (Verndaði „Sigurður Sigurðarson (Vatnsdal)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. september 2016 kl. 22:14

Jóhanna Friðriksdóttir og Sigurður.

Sigurður Sigurðarson frá Vatnsdal, skipasmíða- og húsasmíðameistari í Eyjum fæddist 22. júlí 1928 í Vatnsdal.
Foreldrar hans voru Sigurður Oddgeirsson frá Ofanleiti, verkamaður, tryggingamaður, vélstjóri í Reykjavík, f. 24. apríl 1892, d. 1. júní 1963, og kona hans Ágústa Þorgerður Högnadóttir frá Vatnsdal, húsfreyja, f. 17. ágúst 1901, d. 7. nóvember 1948.

Sigurður fluttist barnungur til Reykjavíkur með foreldrum sínum.
Þau Jóhanna giftu sig 1950 og byggðu sér hús í Kópavogi, fyrst í Víðihvammi og síðar í Hrauntungu.
Þau fluttust til Eyja 1970 og byggðu að Fjólugötu 29.
Hjónin fluttust til Hafnarfjarðar 1999. Jóhanna lést á Sólvangi 2012.

Kona Sigurðar, (25. desember 1950), var Jóhanna Margrét Friðriksdóttir verkakona, verkalýðsleiðtogi, f. 13. október 1930 í Reykjavík, d. 17. nóvember 2012.
Börn þeirra:
1. Atli Sigurðsson sjómaður, f. 3. ágúst 1952 í Reykjavík.
2. Bjartey Sigurðardóttir talmeinafræðingur í Noregi, f. 12. febrúar 1957 í Reykjavík.
3. Gylfi Sigurðsson trésmiður í Eyjum, f. 26. janúar 1959 í Kópavogi.
4. Arnar Sigurðsson, f. 9. mars 1965 í Kópavogi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Morgunblaðið 27. nóvember 2012. Minning Jóhönnu Friðriksdóttur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.