Sigurður K. Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. október 2017 kl. 22:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. október 2017 kl. 22:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Kristján Árnason húsasmíðameistari og listmálari á Seltjarnarnesi fæddist 20. september 1925 að Bergstöðum.
Foreldrar hans voru Árni Magnússon, síðar bóndi á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, f. 26. febrúar 1902 u. Eyjafjöllum, d. 1. október 1961 í Þorlákshöfn, og kona hans Helga Sveinsdóttir húsfreyja og bóndi, f. 12. ágúst 1900 á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, d. 2. ágúst 1974.

Börn Helgu og Árna voru:
1. Sigurður Kristján Árnason húsasmíðameistari, listmálari, f. 20. september 1925 á Bergstöðum.
2. Ragnar Guðbjartur Árnason sjómaður, verkamaður, f. 24. september 1926 á Bergstöðum, d. 31. desember 2004.
3. Magnús Sveinberg Árnason, f. 17. apríl 1929 í Langa-Hvammi, d. 16. febrúar 1930.
4. Magnea Sveinbjörg Árnadóttir húsfreyja, ættfræðingur, f. 12. september 1930 í Skálanesi.
5. Sigrún Árnadóttir húsfreyja, f. 25. janúar 1932 í Varmadal, d. 15. janúar 2004.
6. Jónína Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1935 á Hásteinsvegi 17, d. 7. desember 2009.
7. Ragnhildur Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. ágúst 1938 í Reykjavík, d. 14. janúar 2013.

Sigurður Kristján var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim á Bergstöðum, í Langa-Hvammi 1929, í Skálanesi 1930, á Skólavegi 24, (Varmadal) í lok ársins og enn 1934, á Hásteinsvegi 17 (Fjósinu) 1935.
Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur 1938, en að Kröggólfsstöðum í Ölfusi 1942. Sigurður fór til náms í Reykjavík 1943 og lauk námi í húsasmíðum 1948.
Sigurður hefur stundað myndlist og sýnt verk sín. Hann tók saman, ásamt Gunnari Dal, bókina Íslenzkir myndlistarmenn - Stofnfélagar Myndlistarfélagsins, og gaf hana út 1998.

I. Kona Sigurðar Kristjáns er Vilborg Vigfúsdóttir húsfreyja, gjaldkeri, frá Húsatóftum á Skeiðum, f. 9. nóvember 1929. Foreldrar hennar voru Þórunn Jónsdóttir húsfreyja og Vigfús Þorsteinsson bóndi.
Börn þeirra:
1. Þór Sigurðsson húsasmiður, f. 28. júlí 1954.
2. Árni Sigurðsson húsasmiður, jarðeðlisfræðingur, veðurfræðingur, f. 30. nóvember 1955.
3. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 16. september 1958.
4. Geir Sigurðsson húsasmiður, f. 13. febrúar 1960.
5. Örn Sigurðsson tölvunarfræðingur, f. 31. október 1964, d. 2. september 2017.
6. Helga Sigurðardóttir, f. 4. september 1966, d. 14. september 1969.
7. Helgi Sigurðsson tölvunarfræðingur í Vestmannaeyjum, f. 6. október 1970. Kona hans er Evelyn Consuelo Bryner kennari, f. 30. mars 1968.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir Myndlistarmenn - Stofnfélagar Myndlistarfélagsins. Tekið hafa saman Gunnar Dal og Sigurður K. Árnason. Sigurður K. Árnason ehf. Reykjavík. Prentsmiðjan Oddi hf.
  • Manntöl
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigurður K. Árnason og Vilborg Vigfúsdóttir.
  • Ölfusingar - búendatal Ölfushrepps 1703-1980. Eiríkur Einarsson. Reykjavík. Sögusteinn 1985.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.