Sigurður Jónsson (Vestmannabraut)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2011 kl. 12:53 eftir Snorrima (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2011 kl. 12:53 eftir Snorrima (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Jónsson (Diddi pabbi)

Sigurður Jónsson fæddist þann 24. júlí 1940 í Vestmannaeyjum. Hann lést hinn 25. júlí 2011 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, eftir nokkra sjúkralegu, rétt nýorðinn 71. árs gamall. Foreldrar Sigurðar voru Jón Sigurðsson, f. 12. febrúar 1900, d. 24. janúar 1980 og Karólína Sigurðardóttir, f. 9. október 1899, d. 10. ágúst 1989. Þau bjuggu áður í Ártúni við Vesturveg en byggðu síðan Vestmannabraut 73. Systur Sigurðar voru Geirlaug, f. 20. júní 1923, d. 31. maí 1995, Kristín f. 12. janúar 1926, d. 9. ágúst 2006 og Margrét f. 9. október 1931 en hún er ein á lífi af þeim systkinunum.

Sigurður var jafnan kallaður Diddi pabbi.