Sigurður Gunnarsson (handboltamaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 14:01 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 14:01 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Gunnarsson


Sigurður Gunnarsson er fæddur 11. september 1959. Kona hans er Magnea Björk Ísleifsdóttir. Þau eiga fjögur börn, Ísleif, Sólveigu, Sólbjörtu og Silju. Fjölskyldan býr í Kópavogi og starfar Sigurður hjá ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn auk þess sem hann hefur fengist við handboltaþjálfun.

Sigurður hefur leikið handbolta með mörgum félagsliðum bæði innlendum og erlendum og á fjölda marga landsleiki að baki. Var Sigurður af mörgum talinn vera á meðal bestu leikmanna í Evrópu á níunda áratug 20. aldarinnar.

Sigurður hefur bæði leikið með og þjálfað karlalið ÍBV í handbolta. Sigurður var kjörinn íþróttamaður Vestmannaeyja árið 1989.