Sigurður Gunnarsson (Hólmi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 11:18 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 11:18 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Gunnarsson, Hólmi, fæddist 18. september 1888. Til Vestmannaeyja fluttist hann árið 1908. Fyrstu árin vann hann við málarastörf því hann var málari að iðn. Árið 1915 lét Sigurður smíða 5 tonna bát sem Huginn hét og átti hann að vera dráttarbátur inn og út höfnina, því bæði millilandaskip og strandferðaskip lögðust þá á ytrihöfn. Sigurður var einnig tré- og járnsmiður. Sigurður drukknaði í Vestmannaeyjahöfn 16. janúar 1917.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.