Sigurður Guðmundsson (bonn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 14:42 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 14:42 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Guðmundsson, betur þekktur sem Siggi bonn, var fæddur að Hlíðarhúsi 10. apríl 1858. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og Sigríður Jónsdóttir. Hann lést 27. júní 1911, þá skráður á sveit í Svaðkoti, aðeins 53 ára gamall.

Siggi samdi vísur, en þótti það ekki oft mikill skáldskapur á þeim tíma. Ein betur þekkta vísa hans, sem gjarnan sungin undir alkunnu sálmalagi á Þjóðhátíð hér áður fyrr, var Til hákarla:

Til hákarla í Vestmannaeyjum
fara þeir norðan gaddi í.
Hálfkaldir koma þeir að landi,
upp á Vertshúsið skunda þeir.
Sína sjóblauta vettlinga
verða þeir setja upp grútuga.


Viðurnefni hans, bonn, er líklegast dregið af franska lýsingarorðinu bon, sem þýðir góður, eða kvenkynsmyndinni bonne, sem er borin fram bonn. Á hans árum var mikið um franskar skútur og skútukarla hér við land og var mikið mælt frönsku í hverju sjávarplássi í viðskiptum við Frakkana. Má það vel vera að frönsku skútukarlarnir hafi byrjað að kalla hann eins og hann þekkist í dag. Einnig er það talið að hann hafi búið í húsinu Bonn og fengið viðurnefnið á þann hátt.


Heimildir

  • Heimaslóð og Siggi bonn, bls. 63-65. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1973-1974. 23.-24. árg.