Sigurður Ólafsson (Vegg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 15:02 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 15:02 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Ólafsson, Sigurður í Vegg, fæddist 10. október 1860 og lést 10. mars 1931. Sigurður bjó í húsinu Vegg við Miðstræti, en það hús er horfið.

Sigurður var formaður á eigin bát og var hann með Sigurð gamla Sæmundsson og Óla í Miðhúsum með sér. Árni Árnason símritari fór sinn fyrsta túr með Sigurði, en Sigurður var iðinn við að taka unga stráka með í túra.


Heimildir

  • Árni Árnason. Tólf ára háseti. Heima er best. 1960.