„Sighvatur Bjarnason (bankamaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Sighvatur Bjarnason færð á Sighvatur Bjarnason (bankamaður))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2006 kl. 08:43

Sighvatur Bjarnason fæddist í Vestmannaeyjum 15. júní 1919. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 6. desember 1998. Foreldrar hans voru Bjarni Sighvatsson, bankastjóri í Vestmannaeyjum, og Kristín Gísladóttir. Þann 4. júní kvæntist Sighvatur eftirlifandi eiginkonu sinni, Elínu Jóhönnu Ágústsdóttur, f. 12.6. 1925

Sighvatur og Elín eignuðust 5 börn, Bjarna, Gísla, Viktor Ágúst, Ásgeir og Elínu. Sighvatur átti dóttur af fyrra hjónabandi, Kristínu.

Sighvatur var fæddur í Vestmannaeyjum en fluttist tveggja vikna gamall til Reykjavíkur og ólst þar upp. Hann flutti aftur til Eyja um þrítugt og bjó þar til 1973 er þau hjón fluttust til Reykjavíkur vegna Heimaeyjargossins. Sighvatur starfaði í Útvegsbanka Íslands í 40 ár (1948­-1988). Hann var virkur félagi í Oddfellow-reglunni um áratuga skeið.