Sigfús Scheving

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 13:47 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 13:47 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfús Scheving, Heiðarhvammi, fæddist á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 2. maí 1886. Foreldrar hans voru Vigfús P. Scheving og Friðrikka Sighvatsdóttir.

Sigfús byrjaði ungur sjómennsku í Eyjum á opnu skipi. Um tvítugt fór Sigfús í Sjómannaskóla Reykjavíkur og lauk þar meira fiskimannaprófi eftir einn vetur með fyrstu einkunn. Var Sigfús sá fyrsti sem lauk þessu prófi frá Vestmannaeyjum. Sigfús kom aftur til Vestmannaeyja árið 1911. Ári síðar gerðist hann formaður með Kapitólu en 21. apríl 1912 sökk hún. Þrír björguðust en einn drukknaði. Eftir það var Sigfús meðal annars með Haffrú og Maí.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.