Sandreyður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. febrúar 2007 kl. 13:53 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. febrúar 2007 kl. 13:53 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Latneska heitið er: Balaenoptera borealis.

Sandreyður er skíðishvalur og er dökkgrár að lit með ljósan kvið, ljósa bletti á skrokknum og flekkóttan haus.

Sandreyðurin er 12-20 m á lengd og 20-30 tonn að þyngd. Kýrin er stærri en tarfurinn.

Sandreyður lifir aðallega á átu og krabbasvifdýrum en tekur líka sandsíli. Sandreyðurin er farhvalur og sést hér við land í ágúst og september.