„Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Akurdraugurinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: Akurdraugurinn.
Það var einhverju sinni fyrir löngu, að bóndinn, sem þá bjó á Eystri-Gjábakka í Vestmannaeyjum...)

(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:

Akurdraugurinn.
Akurdraugurinn.

Lína 7: Lína 8:
undir þetta, og varð þeim bónda mjög sundurorða
undir þetta, og varð þeim bónda mjög sundurorða
út af förinni. Þó lauk viðureign þeirra, fyrir harðfylgi bónda, á þá lund, að vinnumaðurinn hafði fataskipti og fór á rekann, en annað heimilisfólk fór til [[Landakirkja|Landakirkju]] að hlýða messu. Vinnumaður drukknaði þarna í básnum, er hann var að eiga við tréð, og gekk

hann aftur, eins og títt var um menn, sem létust með heiftarhug til einhvers. Þegar kirkjufólkið kom aftur heim frá messu, sá það vinnumann á bæjardyrabitanum, þar sem hann skemmti sér við að flá kött. Af
hann aftur, eins og títt var um menn, sem létust með heiftarhug til einhvers.

afturgöngu þessari urðu svo mikil brögð að reimleikum á Eystri-Gjábakka, að bóndi flúði af bænum með
Þegar kirkjufólkið kom aftur heim frá messu, sá það vinnumann á bæjardyrabitanum, þar sem hann skemmti sér við að flá kött. Af
skyldulið sitt, því að honum var þar ekki vært. Eftir
afturgöngu þessari urðu svo mikil brögð að reimleikum á Eystri-Gjábakka, að bóndi flúði af bænum með skyldulið sitt, því að honum var þar ekki vært. Eftir
það var ekki búið þar um alllangt skeið, þangað til
það var ekki búið þar um alllangt skeið, þangað til
[[Johan Nikolai Abel|Abel sýslumaður]] flutti þangað. Telja menn, að
[[Johan Nikolai Abel|Abel sýslumaður]] flutti þangað.

draugurinn hafi aðallega haft hæli sitt í móanum
Telja menn, að draugurinn hafi aðallega haft hæli sitt í móanum
austur af Eystri-Gjábakka, en einnig í [[Landahellir|Landahelli]].

austur af Eystri-Gjábakka, en einnig í [[Landahellir|Landahelli]].

Áttu einhver undirgöng að liggja á milli þessara
Áttu einhver undirgöng að liggja á milli þessara staða.

staða.
Abel sýslumaður var mikill búsýslumaður,
Abel sýslumaður var mikill búsýslumaður, og hóf, skömmu eftir að hann kom að Gjábakka, tilraunir til akuryrkju í móanum austan við bæinn, þar sem draugurinn átti að hafa hæli sitt, og síðan hefur verið nefnt [[Akur, landspilda|Akur]]. Lét sýslumaður [[Sveinn Hjaltason vinnumaður|Svein Hjaltason]], vinnumann sinn, starfa að landbrotinu.

og hóf, skömmu eftir að hann kom að Gjábakka, tilraunir til akuryrkju í móanum austan við bæinn, þar sem draugurinn átti að hafa hæli sitt, og síðan hefur verið nefnt [[Akur]]. Lét sýslumaður [[Sveinn Hjaltason vinnumaður|Svein Hjaltason]], vinnumann sinn, starfa að landbrotinu.
Draugurinn tók þetta illa upp, og urðu ásóknir hans við Svein svo magnaðar, að hann sturlaðist á geði. Ekki heppnuðust akuryrkjutilraunir sýslumanns, og var draugnum kennt um það.

Draugurinn tók þetta illa upp, og urðu ásóknir hans við Svein svo magnaðar, að hann sturlaðist á geði. Ekki heppnuðust akuryrkjutilraunir sýslumanns, og var draugnum kennt um það.

(Sögn [[Hannes Jónsson|Hannesar Jónssonar hafnsögumanns]])
(Sögn [[Hannes Jónsson|Hannesar Jónssonar hafnsögumanns]])

{{Sögur og sagnir}}
{{Sögur og sagnir}}

Núverandi breyting frá og með 8. júní 2012 kl. 10:51

Akurdraugurinn.

Það var einhverju sinni fyrir löngu, að bóndinn, sem þá bjó á Eystri-Gjábakka í Vestmannaeyjum, bað vinnumann sinn, sem var búinn til kirkjugöngu á jóladaginn, að fara austur í Urðir og bjarga upp tré, sem rekið væri í Rekabás. Vinnumaður tók illa undir þetta, og varð þeim bónda mjög sundurorða út af förinni. Þó lauk viðureign þeirra, fyrir harðfylgi bónda, á þá lund, að vinnumaðurinn hafði fataskipti og fór á rekann, en annað heimilisfólk fór til Landakirkju að hlýða messu. Vinnumaður drukknaði þarna í básnum, er hann var að eiga við tréð, og gekk hann aftur, eins og títt var um menn, sem létust með heiftarhug til einhvers.
Þegar kirkjufólkið kom aftur heim frá messu, sá það vinnumann á bæjardyrabitanum, þar sem hann skemmti sér við að flá kött. Af afturgöngu þessari urðu svo mikil brögð að reimleikum á Eystri-Gjábakka, að bóndi flúði af bænum með skyldulið sitt, því að honum var þar ekki vært. Eftir það var ekki búið þar um alllangt skeið, þangað til Abel sýslumaður flutti þangað.
Telja menn, að draugurinn hafi aðallega haft hæli sitt í móanum austur af Eystri-Gjábakka, en einnig í Landahelli.
Áttu einhver undirgöng að liggja á milli þessara staða.
Abel sýslumaður var mikill búsýslumaður, og hóf, skömmu eftir að hann kom að Gjábakka, tilraunir til akuryrkju í móanum austan við bæinn, þar sem draugurinn átti að hafa hæli sitt, og síðan hefur verið nefnt Akur. Lét sýslumaður Svein Hjaltason, vinnumann sinn, starfa að landbrotinu.
Draugurinn tók þetta illa upp, og urðu ásóknir hans við Svein svo magnaðar, að hann sturlaðist á geði. Ekki heppnuðust akuryrkjutilraunir sýslumanns, og var draugnum kennt um það.
(Sögn Hannesar Jónssonar hafnsögumanns)