„Sólveig Anspach“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Solveig Anspach færð á Sólveig Anspach)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 11. júlí 2006 kl. 11:11

Sólveig Anspach er fædd í Vestmannaeyjum þann 8. desember 1960. Móðir hennar er Högna Sigurðardóttir arkitekt og faðir hennar er bandarískur, fæddur í Berlín og foreldrar hans rúmanskir og þýskir. Sólveig ólst upp í útlöndum og stundaði háskólanám í heimspeki og klínískri sálfræði í París. Sólveig hefur ekki búið á Íslandi en vinnur hér öðru hvoru. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt í júní 2006.

Sólveig starfar sem leikstjóri. Hún hefur sérhæft sig í heimildamyndagerð, en hefur einnig gert leiknar myndir. Frægasta verk hennar er „Haut les cæurs“ („Há hjörtu“ á íslensku, þýðir „Haltu höfði“). Sú mynd fjallar um baráttu konu við brjóstakrabbamein. Sólveig kom til Vestmannaeyja árið 2003 til þess að gera kvikmyndina „Stormy Weather“(„Stormviðri“ á íslensku). Fékk hún til liðs við sig fjölda Eyjamanna og hefur myndin verið góð landkynning fyrir Vestmannaeyjar.

Tenglar