„Ritverk Árna Árnasonar/Snorri Þórðarson (Steini)“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 3: Lína 3:
'''Snorri Þórðarson''' frá [[Steinn|Steini]] fæddist 7. mars 1882 og lést 16. desember 1924, 42 ára að aldri. Hann fórst við Eiðið.
'''Snorri Þórðarson''' frá [[Steinn|Steini]] fæddist 7. mars 1882 og lést 16. desember 1924, 42 ára að aldri. Hann fórst við Eiðið.

== Myndir ==
=Frekari umfjöllun=
'''Snorri Þórðarson''' í [[Steinn|Steini]], fæddist 16. mars 1881 í Steig í Mýrdal og lést 16. desember 1924, drukknaði við [[Eiði]]ð á leið út í e.s. Gullfoss.

Faðir hans var Þórður bóndi í Steig, f. 15. mars 1850 á Brekkum í Mýrdal, d. 29. júlí 1882 í Steig, Þórðarson bónda á Brekkum, f. 6. janúar 1798 á Brekkum, d. 26. maí 1862 þar, Ólafssonar bónda á Brekkum, f. 1759, d. 19. febrúar 1823 „í útveri suður í Leiru“, Guðmundssonar, og barnsmóður Ólafs, Ingveldar vinnukonu, f. 1763 á Brekkum, Árnadóttur.

Móðir Þórðar í Steig og síðari kona Þórðar Ólafssonar var Ragnhildur húsfreyja, f. 1809 í Holti í Álftaveri, d. 26. apríl 1892 á Brekkum, Gísladóttir bónda í Holti, f. 1768, d. 22. júní 1811, Jónssonar, og konu Gísla, Ingibjargar húsfreyju, f. 1766, d. 23. júní 1811, Vigfúsdóttur.

Móðir Snorra í Steini og kona Þórðar í Steig var [[Þuríður Ólafsdóttir (Setbergi)| Þuríður]] húsfreyja, f. 25. júlí 1851, d. 11. ágúst 1944 hjá Þórunni dóttur sinni á [[Setberg]]i í Eyjum, Ólafsdóttir bónda, síðast í Steig, f. 1812 á Flögu í Skaftártungu, d. 20. mars 1871, drukknaði í Dyrhólahöfn, Þorlákssonar bónda á Ytri-Sólheimum, f. 17. febrúar 1776 á Herjólfsstöðum í Álftaveri, d. 23. september 1839 á Ljótarstöðum í Skaftártungu, Jónssonar, og konu Þorláks, Elínar húsfreyju, f. 1771 í Ytri-Ásum í Skaftártungu, d. 21. september 1844, Loftsdóttur.

Móðir Þuríðar Ólafsdóttur og kona Ólafs Þorlákssonar var Halldóra húsfreyja, f. 15. september 1825 á Búlandi í Skaftártungu, d. 12. október 1917 á Hnausum í Meðallandi, Jónsdóttir bónda á Búlandi, f. 1787 á Búlandi, d. 13. mars 1875, Björnssonar, og konu Jóns Björnssonar, Oddnýjar húsfreyju, f. 2. september 1791 á Þverá á Síðu, d. 6. ágúst 1843 á Búlandi, Runólfsdóttur.

Snorri var 8 ára niðursetningur á Loftsölum í Mýrdal 1890. Hann fluttist til Eyja árið 1899.

1901 var hann vinnumaður í [[Dalir|Dölum]]. Við manntal 1910 var hann „Fuglari“ og leigjandi á [[Hlíðarendi|Hlíðarenda]].

Við manntal 1920 var hann í Steini, kvæntur bátaútgerðarmaður með Þorgerði.

Systkini Snorra í Eyjum voru

1. [[Guðmundur Þórðarson (Akri)|Guðmundur Þórðarson]] útgerðarmaður á [[Akur|Akri]], f. 7. maí 1878, d. 16. desember 1924, fórst með Snorra bróður sínum við [[Eiði]]ð.

2. [[Þórunn Þórðardóttir (Setbergi)|Þórunn Þórðardóttir]] húsfreyja á [[Vesturvegur|Vesturvegi 23, (Setbergi)]], f. 9. desember 1880, d. 19. maí 1980, kona [[Unnsteinn Sigurðsson (Setbergi)|Unnsteins Sigurðssonar]] skipasmiðs.

Kona Snorra Þórðarsonar í Steini var [[Þorgerður Jónsdóttir (Steini)|Þorgerður Jónsdóttir]] húsfreyja í Steini, f. 15. nóvember  1880 í Vestra-Fíflholti í Landeyjum, d. 19. júní 1939.

Börn Snorra og Þorgerðar í Steini:

1. [[Þuríður Snorradóttir (Steini)|Þuríður]], f. 3. maí 1913, d. 20. september 2003.

2. [[Aðalheiður Margrét Snorradóttir (Steini)|Aðalheiður Margrét]], f. 29. október 1914.

3. [[Aðalsteinn Rútur Snorrason|Aðalsteinn ''Rútur'']], f. 26. apríl 1918, d. 18. ágúst 2001.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Snorri var lágur að vexti, tæplega meðalmaður, en vel þrekinn og allsterklegur á velli, var áður léttleikamaður mikill, snar og þéttur í átökum og fylginn sér hvívetna. Hann var dagfarsgóður maður, stilltur og gætinn, frekar til baka gagnvart almenningi og virkaði daufur í skapgerð og ómannblendinn, en í félagsskap var hann skemmtilegur og viðræðugóður, en orðvar.

Snorri var allsleipur veiðimaður, en veiddi þó ávallt upp á hægri hönd, gat ekki veitt upp á hina. Sat hann því oft öfugur og virkaði það einkennilega til að sjá. Staði bjó hann nokkra fyrir sig, liggur þar háfurinn beint niður frá honum. Hann var frakkur í fjöllum og alls óhræddur, en fór þó allvarlega þó hratt færi.

Hann var töluvert við veiðar alls konar og þótti góður veiðimaður. Hin síðustu árin veiddi hann í [[Heimaklettur|Heimakletti]], en var þó að fara í úteyjar. Hann var annars sjómaður og stundaði þess utan hvers konar landvinnu og t.d. mikið við skipaafgreiðslurnar og lést við þau störf við góðan orðstír.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Íslendingabók.is.
*Manntöl.
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}

[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á  19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á  20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Steini]]

= Myndir =
<Gallery>
<Gallery>
Mynd:KG-mannamyndir 13412.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 13412.jpg
Lína 9: Lína 51:

</gallery>
</gallery>
[[Flokkur:Stubbur]]

Leiðsagnarval