Ritverk Árna Árnasonar/Magnús Ástgeirsson (Litlabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. desember 2014 kl. 19:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. desember 2014 kl. 19:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Magnús Ástgeirsson í Litlabæ fæddist 27. apríl 1887, fórst af mb. Sæborgu 9. október 1909.
Foreldrar hans voru Ástgeir Guðmundsson bátasmiður í Litlabæ, f. 27. október 1858 á Bryggjum í Landeyjum, d. í Eyjum 30. september 1943, og kona hans Kristín Magnúsdóttir, f. 10. janúar 1859 á Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 13. júlí 1938 í Eyjum.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Systir Kristínar var Guðrún kona Gísla Eyjólfssonar á Búastöðum og Sigríður Magnúsdóttir í Reykjavík kona Júlíusar bróður Ástgeirs, - þ.e. hálfbróður.
Magnús fórst með mb. Sæborgu; voru tveir á bátnum í landferð. Rak bátinn á land fram af Klasbarða og fannst Magnús drukknaður þar mjög nálægt bænum í síki. Hinn maðurinn fannst aldrei, en það var Sigurjón mágur Magnúsar.
Magnús var mjög lipur veiðimaður og stundaði bjargveiðar alls konar við góðan orðstír, m.a. í Suðurey og Brandi. Hann var meðalmaður á hæð, stilltur og gætinn við störf og í daglegri umgengni, mjög vinfastur, trúr og traustur.
Lífsstarf hans var fiskveiðar, en annars var hann hagur vel á hvers konar smíðar, eins og hann á ættir til að rekja.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir