Ritverk Árna Árnasonar/Jón Runólfsson (Bræðratungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2013 kl. 15:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2013 kl. 15:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Jón Runólfsson (Bræðratungu)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Jón Runólfsson frá Bræðratungu, vélvirkjameistari, forstöðumaður Áhaldahússins, fæddist 29. nóvember 1924.
Foreldrar hans voru Runólfur Runólfsson formaður og vélstjóri í Bræðratungu, f. 12. desember 1899, d. 4. júní 1983, og kona hans Unnur Þorsteinsdóttir húsfreyja í Bræðratungu, f. 19. október 1904, d. 16. mars 1947.

Jón er vélvirkjameistari og var yfirmaður Áhaldahúss bæjarins fram að Gosi.
Hann vann síðan við Álverið í Straumsvík.
Kona hans er Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir húsfreyja, f. 19. október 1926.
Börn Jóns og Ingibjargar Ágústu:
1. Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Dalvík, f. 19. október 1944, d. 14. febrúar 2013. Maður hennar var Bragi Jónsson smiður.
2. Unnur Jónsdóttir húsfreyja og bóndi í Kjós, f. 26. maí 1949. Maður hennar er Bjarni Kristjánsson bóndi.
3. Inga Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1951. Maður hennar er Friðfinnur Finnbogason kaupmaður.
4. Jón Ágúst Jónsson, f. 29. september 1952, d. 6. febrúar 1953.
5. Jón Ágúst Jónsson smiður á Selfossi, f. 4. mars 1955. Kona hans er Margrét Jónsdóttir.

Jóns er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir