„Ritverk Árna Árnasonar/Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:
Foreldrar hans voru [[Gísli Stefánsson (kaupmaður)|Gísl Stefánsson]] kaupmaður, f. 28. ágúst 1842 d. 25. september 1903, og kona hans [[Soffía Lisbeth Andersdóttir]] húsfreyja, f.  8. október 1847, d. 10. júní 1936.

Foreldrar hans voru [[Gísli Stefánsson (kaupmaður)|Gísl Stefánsson]] kaupmaður, f. 28. ágúst 1842 d. 25. september 1903, og kona hans [[Soffía Lisbeth Andersdóttir]] húsfreyja, f.  8. október 1847, d. 10. júní 1936.

Kona Friðriks var [[Anna Petrea Thomsen|Anna Thomsen]] (Anna Jesdóttir Gíslason á mt. 1910), f. 9. maí 1871 í Eyjum, d. 3. maí 1937, hálfsystir [[Guðmundur Jesson|Guðmundar Thomsen Jessonar]] á [[Litla-Grund|Litlu-Grund]], f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.

Kona Friðriks var [[Anna Petrea Thomsen (Godthaab)|Anna Thomsen]] (Anna Jesdóttir Gíslason á mt. 1910), f. 9. maí 1871 í Eyjum, d. 3. maí 1937, hálfsystir [[Guðmundur Jesson|Guðmundar Thomsen Jessonar]] á [[Litla-Grund|Litlu-Grund]], f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.

Börn Friðriks og Önnu voru:

Börn Friðriks og Önnu voru:

Útgáfa síðunnar 5. maí 2014 kl. 12:04

Kynning.

Friðrik Gísli Gíslason ljósmyndari frá Hlíðarhúsi fæddist 11. maí 1870 og lést 15. janúar 1906.
Foreldrar hans voru Gísl Stefánsson kaupmaður, f. 28. ágúst 1842 d. 25. september 1903, og kona hans Soffía Lisbeth Andersdóttir húsfreyja, f. 8. október 1847, d. 10. júní 1936.

Kona Friðriks var Anna Thomsen (Anna Jesdóttir Gíslason á mt. 1910), f. 9. maí 1871 í Eyjum, d. 3. maí 1937, hálfsystir Guðmundar Thomsen Jessonar á Litlu-Grund, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.

Börn Friðriks og Önnu voru:
1. Jóhanna, f. 4. júlí 1895 í Reykjavík, d. 20. júní 1979, gift Daníel Kr. Oddssyni loftskeytamanni, er fórst á Reykjaborg af styrjaldaraðgerðum. Hann var um tíma símastjóri í Eyjum.
2. Olga, f. 14. júní 1898 í Reykjavík, d. 30. júlí 1944.
3. Soffía, f. 22. júlí 1900 í Reykjavík, d. 12. ágúst 1968.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Friðrik var hinn mesti léttleikamaður, kátur og skemmtilegur. Hann var mikið við fuglaveiðar og telur Jón Jónsson frá Dölum, að hann hafi verið efni í góðan bjargveiðimann, en sneri sér að öðru.
Hann var alinn upp hjá foreldrum sínum að Hlíðarhúsum og tók mikinn og virkan þátt í nýtingu þeirra leigumála, er faðir hans nytjaði.
En Friðrik fór snemma héðan og gerðist ljósmyndasmiður í Reykjavík og víðar og þótti prýðisgóður sem slíkur. Sundkennari var hann hér með þeim fyrstu og kenndi mörgum unglingum sund.
Hafði einu sinni rétt sleppt sér, er hann fór á lærvað suður af „Skerinu“ sem venjulega var farið, ef sjór var dauður, um 15 faðma sig. Vildi ekki láta binda sig, en var ekki útbúinn að veiðimannasið, t.d. í fjallamannabuxum. Þótti víst minnkun í að láta binda sig, sem er þó siður nær ævinlega.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir