Ritverk Árna Árnasonar/Friðrik Ásmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. september 2013 kl. 22:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. september 2013 kl. 22:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Ásmundsson skipstjóri, skólastjóri, fæddur 26. nóvember 1934.
Foreldrar hans voru Ásmundur Karl Friðriksson skipstjóri og framkvæmdastjóri á Löndum, síðar í Keflavík, f. 31. ágúst 1910, d. 17. nóvember 1963, og fyrri kona hans Elísa Olga Magdal Pálsdóttir húsfreyja frá Reykjavík, f. 2. september 1907, d. 7. nóvember 1945.

Friðrik Ásmundsson.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Friðrik er hár vexti og þrekinn, fríður sýnum, svarthærður. Hann er stilltur og prúður í daglegri umgengni, en er annars kátur og skemmtilegur piltur og besti drengur í félagsskap. Hann er lítt vanur veiðum, en virðist ætla að verða góður veiðimaður, ef hann heldur áfram. Hann er vel styrkur, snöggur í snúningum og ósérhlífinn við vinnu.
Hann hefir verið til sjós með föður sínum á togurum, en er nú í millilandasiglingum á fragtskipum, mjög vel látinn af öllum. Hefir nú síðari ár verið í sjómannaskólanum í Reykjavík.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Friðrik Ásmundsson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir