Ritverk Árna Árnasonar/Ágúst Ólafsson (Gíslholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. ágúst 2013 kl. 21:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. ágúst 2013 kl. 21:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ágúst Ólafsson (Gíslholti) á Ritverk Árna Árnasonar/Ágúst Ólafsson (Gíslholti))
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Ólafsson frá Gíslholti fæddist 1. ágúst 1927 og lést 29. júlí 2003.
Foreldrar hans voru Ólafur Vigfússon formaður í Gíslholti, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974 og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 22. mars 1898, d. 19. apríl 1969.

Ágúst var smiður og smábátaútgerðarmaður („trillukarl“), f. 1. ágúst 1927, dáinn 29. júlí 2003.
Kona Ágústs var NannaGuðjónsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1928.
Þau Ágúst giftust 31. desember 1954.
Ágúst hafði byggt hluta íbúðarhússins að Austurvegi 22, er þau kynntust, og fluttust þau í húsið 1955.
Við Gos fluttu þau til Reykjavíkur, síðan í Hveragerði, en voru komin til Eyja innan árs.
Bjuggu þau að Heiðarvegi 61.

Börn Ágústs og Nönnu:
1. Jóhann Grétar Ágústsson, 7. júní 1955, ókvæntur.
2. Jóna Kristín Ágústsdóttir, f. 9. ágúst 1857, gift Birgi Guðjónssyni Magnússonar.
3. Salbjörg Ágústsdóttir, f. 24. febrúar 1959, gift Ósvaldi Tórshamar.
4. Jenný Ágústsdóttir, f. 2. janúar 1961, ógift.
5. Ólafur Gísli Ágústsson, f. 15. ágúst 1965, kvæntur Báru Kristinsdóttur Ástgeirssonar, ættuð frá Miðhúsum. Þau skildu.
6. Jón Eysteinn Ágústsson, f. 19. október 1970.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara: Bjargveiðimannatal.
Ágúst er lágur vexti, en nokkuð þrekinn og feitlaginn, búlduleitur, dökkhærður og frísklegur í ásýnd. Hann er prúðmannlegur í framkomu, stilltur og gætinn í orðum, léttur í lund, snar í hreyfingum; ágætur félagi og skemmtilegur.
Hann er fremur ungur veiðimaður, en hefur náð góðum árangri, alls óhræddur og virkar jafnvel full kæruleysislega og um of kaldrifjaður við bjarggöngu, en reyndin er sú, að hann fer gætilega, en er alls ósmeykur. Bendir þar til staður á austurbrúninni fram af gamla kofanum, mjög tæpur staður á örmjóum bergfláa; þar veiðir Ágúst ca. metra fyrir neðan brún og unir sér vel. Ágúst er kappsfullur og fyrirhyggjumaður og hefir verið fyrirliði núverandi Suðureyjarfélags, vellátinn af félögum sínu.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir