Rita

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. maí 2006 kl. 13:45 eftir Andri (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. maí 2006 kl. 13:45 eftir Andri (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Rita (Rissa tridactyla)

Lengd: 39-46 cm.

Fluglag: Ritan er mikill sjófugl og er ákaflega létt og lipur á flugi. Hún hringsólar oft kringum fiskibáta og steypir sér eftir æti eins og kría.

Fæða: Einkum síli og smádýr sem hún grípur af yfirborði sjávar.

Varpstöðvar: Þær haldasig meira í fuglabjörgum en aðrir máfar og sitja oft þétt efst í björgunum.

Hreiður: Notar sinu og gróðurleifar sem hún festir við klettasyllurnar.

Egg: Oftast tvö, ljósgrá eða ljósbrún með dökkum flíkrum.

Heimkynni: Ritan verpir víða við strendur á norðurslóðum og við strendur Everópu suður til Fraklands, en kemur yfirleitt ekki að landi nema á varptímanum.