Rebekka Beate Ringsted

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Rebekka Beate Ringsted frá Godthaab fæddist 8. september 1840 og lést 11. maí 1928 í Khöfn,
Foreldrar hennar voru Niels Stephan Ringsted verslunarstjóri við Godthaabsverslun, f. 1805, d. 6. september 1853, og síðari kona hans Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 1801.

Rebekka var tvíburi á móti Helgu Sigurlaugu. Þær voru í Godthaab 1840 og 1841, en í PétursborgSteinshúsi 1842 og 1843.
Þær fóru með foreldrum sínum til Danmerkur 1844, bjuggu í Prinsensgade 377 á 1845, fluttust þaðan til Reykjavíkur, voru þar í Knudtzonshúsi síðla árs 1845.
Þau komu aftur til Eyja 1846 þar sem faðir þeirra stýrði Godthaabsverslun til 1947, en þá fluttist fjölskyldan alfarin til Danmerkur.
Þau bjuggu við Nörrebro 45 í Kaupmannahöfn 1850.
Faðir hennar lést 1853.
Hún var ógift og barnlaus. Hún bjó með Emilie systur sinni 1906 og 1911.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.