Rýnisklettar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 08:59 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 08:59 eftir Smari (spjall | framlög) (Rýniklettar færð á Rýnisklettar)
Fara í flakk Fara í leit

Rýnisklettar eru klettar sem standa við Höfðaveg. Var venja manna að fara þangað og líta á sjólagið við Nafarinn en það er strýtumyndað sker sem sést á milli Hana og Hrauneyjar. Sagt var að fært væri í Sandinn, þ.e. Landeyjasand ef öldurnar brutu ekki ekki á skerinu — ef að braut á skerinu, þá braut líka í sandinn, og var þá ómögulegt að landa bát þar.