Rýnisklettar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júní 2006 kl. 09:58 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júní 2006 kl. 09:58 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Rýnisklettar eru klettar sem standa við Höfðaveg, á einbýlishúsalóð númer 27. Venja manna var að fara þangað og líta á sjólagið við Nafarinn en það er strýtumyndað sker sem sést á milli Hana og Hrauneyjar. Sagt var að fært væri í Sandinn, þ.e. Landeyjasand, ef alda braut ekki á skerinu — ef braut á skerinu, þá braut líka við Sandinn, og var þá ófært að lenda bát þar. Nafn klettanna er komið af því að „rýna“ eftir sjólagi við Nafarinn.