„Rósinkranz Eiríksson (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Rósinkranz Eiríksson''' sjómaður frá Gjábakka fæddist 10. september 1850 og drukknaði 26. febrúar 1869.<br> Foreldrar hans voru [[Kristín Jónsdóttir (Gj...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 17: Lína 17:
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*[[Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum]]. [[Jóhann Gunnar Ólafsson]]. [[Þorsteinn Johnson]] 1938-1939.}}
*[[Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum]]. [[Jóhann Gunnar Ólafsson]]. [[Þorsteinn Johnson]] 1938-1939.}}{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur: Íbúar á Gjábakka]]
[[Flokkur: Íbúar á Gjábakka]]

Núverandi breyting frá og með 19. ágúst 2015 kl. 12:00

Rósinkranz Eiríksson sjómaður frá Gjábakka fæddist 10. september 1850 og drukknaði 26. febrúar 1869.
Foreldrar hans voru Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1811, d. 14. október 1883, og maður hennar Eiríkur Hansson sjávarbóndi, f. 3. ágúst 1815, drukknaði 26. febrúar 1869.

Rósinkranz var með foreldrum sínum frá fæðingu. Hann var vinnumaður hjá Magnúsi Oddssyni á Kirkjubæ 1866, var skipverji á Blíð og fórst við Bjarnarey 1869, ásamt föður sínum, Jóni bróður sínum, Jóni lóðs mági sínum, Guðna verðandi mági sínum og fleiri í Útilegunni miklu við Bjarnarey 1869.
Rósinkranz var ókvæntur og barnlaus.
Þeir, sem fórust við Bjarnarey voru:
1. Jón Jónsson lóðs á Vilborgarstöðum, formaður. Kona hans var Veigalín Eiríksdóttir frá Gjábakka.
2. Eiríkur Hansson bóndi á Gjábakka.
3. Jón Eiríksson, sonur Eiríks Hanssonar.
4. Rósinkranz Eiríksson.
5. Guðni Guðmundsson smiður í Fagurlyst, verðandi tengdasonur Eiríks Hanssonar, sambýlismaður Málfríðar Eiríksdóttur.
6. Snjólfur Þorsteinsson í Görðum við Kirkjubæ unnusti Þorgerðar Gísladóttur.
7. Bjarni Magnússon bóndi á Kirkjubæ.
8. Jósep Sveinsson sjómaður í Háagarði.
9. Jón Guðmundsson frá Núpakoti undir Eyjafjöllum, óskilgetinn sonur Margrétar Halldórsdóttur, síðari konu Jóns Þorgeirssonar bónda á Oddsstöðum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.