Prestasteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 21:50 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 21:50 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Prestasteinn er hraunhóll sem stendur í efst í Skuldartúni, við rætur Helgafells að norðan. Sagt er að hann hafi þannig fengið nafn sitt, að fyrr á öldum, þegar prestarnir á Ofanleiti og Kirkjubæ voru í heimsókn hvor hjá öðrum, var sá vani að fylgja gestinum hálfa leiðina heim á leið að hraunhóli þessum, en þaðan sást einkar vel til beggja bæja.