Philip Theodor Davidsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 10:33 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 10:33 eftir Inga (spjall | framlög) (flokkur fólk)
Fara í flakk Fara í leit

Philip Theodor Davidsen var héraðslæknir á árunum 1852 til 1862. Hann var danskrar ættar eins og þeir læknar, sem áður höfðu verið skipaðir til læknisþjónustu í Vestmannaeyjum. Davidsen hafði áður verið aðstoðarlæknir í her Dana í Slésvíkurstríðinu 1849 til 1850 og síðar starfandi læknir í Kaupmannahöfn. Hann lést árið 1862 og var þá Solveigu Pálsdóttur enn með stjórnarráðsbréfi falið að veita sjúkum læknishjálp, þar til nýr læknir kæmi og hlaut hún sérstök laun fyrir þetta starf sitt.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.