Pétur Jónsson (Elínarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. nóvember 2013 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. nóvember 2013 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Jónsson sjómaður í Elínarhúsi fæddist 1. október 1800 í Presthúsum í Mýrdal og lést 15. maí 1859.
Faðir hans var Jón bóndi, lengst í Presthúsum og Norður-Fossi í Mýrdal, f. 1764 á Reyni þar, d. 13. janúar 1834 á Norður-Fossi, Pétursson bónda á Reyni, f. 1725, á lífi 1792, Ólafssonar bónda í Hjörleifshöfða, f. 1689, Ólafssonar, og konu Ólafs í Hjörleifshöfða, Sigríðar húsfreyju frá Flekkuvík á Vatnsleysuströnd, f. 1695 á Suðurnesjum, d. 1784, Jónsdóttur.
Móðir Jóns í Presthúsum og kona Péturs Ólafssonar er ókunn, fædd 1726.
Móðir Péturs og kona Jóns í Presthúsum var Ástríður húsfreyja, f. 1768 í Hvammi í Mýrdal, d. 14. maí 1832 á Norður-Fossi, Þorsteinsdóttir (líklega) bónda í Norður-Hvammi, f. 1733, Jónssonar, og konu Þorsteins, Guðrúnar húsfreyju (með vissu móðir Ástríðar), f. 1732, Freysteinsdóttur bónda í Hvammi í Mýrdal, f. 1697, Árnasonar.

Kona Péturs í Elínarhúsi var Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1806 í Álftagróf í Mýrdal, d. 28. febrúar 1880 í Elínarhúsi.

Pétur var með foreldrum sínum í Presthúsum í Mýrdal 1801 og 1816, á Norður-Fossi þar 1819 og til 1833. Hann var vinnumaður í Reynishjáleigu þar 1833/4-1835. Þá fór hann til Eyja.
Hann var búandi sjómaður í Elínarhúsi 1845 og enn 1855 og til æviloka 1859.
Þau Guðrún töldust til Kirkjubæjarsóknar árið 1837, búandi í Elínarhúsi.
Börn Péturs og Guðrúnar voru:
1. Jón Pétursson formaður í Elínarhúsi, f. 29. mars 1829 á Reyni í Mýrdal, d. 15. júlí 1868 í Elínarhúsi, kvæntur Vilborgu Þórðardóttur. Hann var fyrri maður hennar. Síðari maður hennar var Sigurður Árnason í Elínarhúsi. Þau fóru til Vesturheims, ásamt börnum Vilborgar og Jóns.
2. Guðmundur Pétursson sjómaður, f. 1836, var á lífi 1890.
3. Eyjólfur Pétursson, d. 16. maí 1839.
4. Eyjólfur Pétursson, d. 17. ágúst 1840.
5. Guðrún Pétursdóttir, f. 21. febrúar 1842.
6. Ólafur Pétursson, f. 1846. Var með fjölskyldunni í Elínarhúsi 1850.


Heimildir