Pétur Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 08:56 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 08:56 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Andersen, Sólbakka, fæddist 30. mars 1887 í Fredrikssundi í Danmörku og lést 6. apríl árið 1955. Pétur kom til Vestmannaeyja 1907 og varð fljótlega eftirsóttur vélamaður því hann hafði meiri kunnáttu í þeim geira en flestir í þá daga. Hann var vélamaður á Friðþjófi hjá Friðriki Svipmundssyni og svo á Lunda hjá Guðleifi Elíssyni á Brúnum.

Formennsku byrjaði Pétur árið 1912 á Lunda I og var með þann bát til 1920. Þá keypti hann Skógafoss með fleiri mönnum og var formaður með bátinn til ársins 1926.

Pétur var aflakóngur árið 1924.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.