Pétur Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 13:13 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 13:13 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Andersen, Sólbakka, fæddist 30. mars 1887 í Fredrikssundi í Danmörku. Pétur kom til Vestmannaeyja 1907 og varð fljótlega eftirsóttur vélamaður því hann hafði meiri kunnáttu í þeim geira en flestir í þá daga. Hann var vélamaður á Friðþjófi hjá Friðriki Svipmundssyni og svo á Lunda hjá Guðleifi Elíssyni á Brúnum.

Formennsku byrjaði Pétur árið 1912 á Lunda I og er með þann bát til 1920. Þá kaupir hann Skógarfoss með fleiri mönnum og er formaður með bátinn til ársins 1926.

Pétur var aflakóngur árið 1924. Hann lést 6. apríl árið 1955.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.