„Páll Zóphóníasson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(lagaði tengil)
mEkkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:PállZóp.jpg|thumb|350px|Páll Zóphóníasson við Pompei Norðursins.]]'''Páll Hjaltdal Zóphóníasson''' fæddist 12. júlí árið 1942 í Kaupmannahöfn. Hann er sonur Zóphóníasar Pálssonar, skipulagsstjóra ríkisins og Lis Pálssonar (Ulleman), háskólakennara. Páll er kvæntur [[Sesselja Áslaug Hermannsdóttir|Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur]] frá Ísafirði, og þau eiga saman börnin [[Zóphónías Pálsson|Zóphónías]] og [[Sif Hjaltdal Pálsdóttir|Sif]].
[[Mynd:PállZóp.jpg|thumb|350px|Páll Zóphóníasson við Pompei Norðursins.]]'''Páll Hjaltdal Zóphóníasson''' fæddist 12. júlí árið 1942 í Kaupmannahöfn. Hann er sonur Zóphóníasar Pálssonar, skipulagsstjóra ríkisins og Lis Pálssonar (Nellemann), háskólakennara. Páll er kvæntur [[Sesselja Áslaug Hermannsdóttir|Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur]] frá Ísafirði, og þau eiga saman börnin [[Zóphónías Pálsson|Zóphónías]] og [[Sif Hjaltdal Pálsdóttir|Sif]].





Útgáfa síðunnar 21. mars 2007 kl. 11:49

Páll Zóphóníasson við Pompei Norðursins.

Páll Hjaltdal Zóphóníasson fæddist 12. júlí árið 1942 í Kaupmannahöfn. Hann er sonur Zóphóníasar Pálssonar, skipulagsstjóra ríkisins og Lis Pálssonar (Nellemann), háskólakennara. Páll er kvæntur Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur frá Ísafirði, og þau eiga saman börnin Zóphónías og Sif.


Páll lauk námi í trésmíði árið 1962 og í byggingartæknifræði 1967 frá Álaborg. Hann var byggingatæknifræðingur hjá ráðgjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg á árunum 1967-1972. Páll starfaði svo sem bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum árin 1972-76. Það var einmitt í gosinu og gegndi hann mikilvægu hlutverki í gosinu og eftir það. Hann tók við sem bæjarstjóri á árunum 1976-1982. Síðan þá hefur hann rekið ráðgjafar- og teiknistofu, Teiknistofa PZ, í Vestmannaeyjum.

Páll er félagsforingi skátafélagsins Faxi og er formaður Norræna félagsins í Vestmannaeyjum. Hann er ennfremur sænskur konsúll í Vestmannaeyjum.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.