Oddsstaðir eystri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. september 2006 kl. 08:24 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. september 2006 kl. 08:24 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd:Oddstaðir eystri.JPG
Mynd tekin 1937

Húsið Oddstaðir eystri stóð á austanveðri Heimaey, vestur af Kirkjubæjum. Einar Vilhjálmsson trésmiður ættaður frá Þuríðarstöðum í Fljótsdal byggði húsið árið 1927 og bjó þar ásamt konu sinni Halldóru S. Sigurðardóttur frá Klömbru Austur-Eyjafjöllum, börn þeirra; Ingibjörg Þórstína, Sigurjón og Guðbjörg. Árið 1962, eignuðust húsið Jóel Guðmundsson frá Háagarði og Guðrún R. Pétursdóttir frá Kirkjubæ. Húsið varð eldi að bráð, þegar hraunbomba lenti á því á fjórða degi eldgossins 1973.

Mynd:Oddstaðir eystri.jpg
Mynd tekin 25. janúar 1973